Almyrkvinn 2026. Hvar finn ég upplýsingar?
Almyrkvinn er einstakur náttúruatburður sem verður sýnilegur frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.
Annars staðar á landinu verður djúpur deildarmyrkvi, þar sem skuggi tunglsins gengur að miklum hluta til fyrir sólina. Á Suðurlandi mun tunglið til að mynda hylja á milli 96-99,9% sólarinnar eftir því hvaðan er horft til himins þegar myrkvinn nær hámarki.
Með góðum undirbúningi, samræmdri upplýsingagjöf og góðri samvinnu getum við skapað örugga og eftirminnilega upplifun fyrir íbúa og gesti sem vilja upplifa atburðinn.