Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Morgunfundur Markaðsstofu Suðurlands: Er vefurinn klár fyrir bottana?

Markaðsstofa Suðurlands heldur reglulega rafræna morgunfundi fyrir sína samstarfsaðila sem hafa jafnan verið vel sóttir. Síðasti fundur var haldinn þann 31. mars og mættu þá um 40 manns til að hlýða á Guðbjörgu Guðmundsdóttur, efnishönnuð hjá Stefnu, halda fræðsluerindi um gerð vandaðs vefefnis fyrir gervigreindina.
Er vefurinn klár fyrir bottana?
Er vefurinn klár fyrir bottana?

Lögð áhersla á vandað efni og aðgengilegan texta á vefnum

Notkun á gervigreindartólum á sér ekki mjög langa sögu en hefur nú þegar kollvarpað vinnulagi á marga vegu. Þegar maður biður til dæmi ChatGPT eða annað gervigreindartól um ráðleggingar þá fara þjálfuð risamállíkön af stað og búa til upplýsingar á rauntíma. Mállíkönin eru þjálfað til að nota efni frá vefjum sem eru líklegri til að nýtast fólki, svo það er eitthvað sem vert er að hafa í huga við efnisgerð á heimasíðunum okkar.

Guðbjörg lagði áherslu á að blogg og þjónustumiðað efni eigi ekki heima á sama stað, og að notendur þurfi að fá réttar upplýsingar á einfaldan og læsilegan hátt. Hún benti á að mállíkön treysta texta sem er skýr, reglulega uppfærður og vel uppsettur, með sterkum fyrirsögnum og réttum millifyrirsögnum.

Einfalt og manneskjulegt mál skiptir mestu. Forðast ætti flókin orð og einnig skal skrifa heilar setningar í stað skammstafana í textagerðinni, en það getur aukið skírleika að setja upp í punktaformi. Þá minnti hún á að myndir þurfa lýsandi texta, bæði vegna aðgengis og til að efni sé betur lesið af tólum sem skanna vefi.

Guðbjörg líkti vefumsjón við viðhald á bíl: „Vefurinn þarf reglulega umhirðu.“ Að lokum minnti hún á að markmiðið í dag er ekki að skrifa markaðstexta, heldur að skrifa fyrir fólk. „Það sem virkar fyrir fólk þar virkar fyrir bottana – góðu textarnir vinna alltaf.“