Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

ÁRNES / Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Árnes er vaxandi byggðakjarni en þar er m.a. félagsheimilið Árnes, Þjórsárstofa, Þjórsárskóli, Neslaug, gistiheimili, tjaldsvæði og verslun. Eitt vinsælasta ferðamannasvæði Íslands, Árnessýsla, státar af miklu náttúruundri og vel merktum sögulegum stöðum. Hverir og jarðhiti einkenna svæðið og hafa áhrif á menningu svæðisins sem og sögulegum stöðum sem marka tímamót í sögu lands og samfélags Íslands. Árnessýsla teygir sig frá Þingvöllum að Þjórsá og inn á miðhálendið. Íbúar eru um 2600 og búa í fjórum sveitarfélögum: Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi.   Hér má sjá myndband um sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahrepp.
ÁSAHREPPUR
Ásahreppur er hreppur vestast í Rangárvallasýslu. Áshreppingar hafa atvinnu af landbúnaði, verslun og öðrum þjónustugreinum. Náttúran er mjög fjölbreytt, mýrlent á köflum en ásar og holt á milli þar sem bændabýlin standa 3 - 5 í þyrpingum eða hverfum, sem einkenna byggðamynstur sveitafélagsins. Stærsta varpland grágæsar á Íslandi er við Frakkavatn. Þjórsá rennur við hreppamörkin og sýslumörkin í vestri. Afréttur Ásahrepps er 4/7 hlutar af Holtamannaafrétti á móti 3/7 eignarhluta Rangárþings ytra. Holtamannaafréttur nær meðal annar yfir austurhluta Þjórsárvera, og vesturhluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Um Holtamannaafrétt liggur Sprengisandsvegur milli Suður- og Norðurlands.
BORG / Grímsnes- og Grafningshreppi
Vaxandi byggðakjarni er á Borg í Grímsnesi, þar er fjölþætt þjónusta fyrir heimamenn og ferðamenn, skóli, leikskóli, félagsheimili, verslun, gisting og tjaldsvæði. Á Borg er íþróttasalur og mjög góð sundlaug með gufu, rennibraut, heitum pottum og vaðlaug. Í félagsheimilinu er fjölbreytt menningarstarfsemi og viðburðir.Borg er í um 70 km fjarlægð frá Reykjavík, vel staðsett miðsvæðis á Gullna hringnum og stutt í þekktar náttúruperlur, fjölbreytta þjónustu og afþreyingu. Kerið, Þingvellir, Laugarvatn, Gullfoss og Geysir.Adrenalíngarðurinn Nesjavöllum, sýning í Ljósafossstöð. Lítil fjöll til að klífa og gönguleiðir í Þrastaskógi. Sólheimar í Grímsnesi lítið vistvænt þorp er skammt frá.
BRAUTARHOLT / Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Brautarholt er lítill fjölskylduvænn byggðarkjarni í miðjum Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Fyrir utan leikskóla, er þar að finna tjaldsvæði, ærslabelgur, sundlaug og íbúðahótel.  Skeiðalaug var vígð árið 1975, eftir samhent átak íbúa við byggingu hennar.  Hér má sjá myndband um sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahrepp.
EYRARBAKKI / Árborg
Á Eyrarbakka búa 585 manns í vinalegu þorpi sem áður var helsti verslunarstaður og hafnarsvæði á Suðurlandi. Fjöldi húsa er frá árunum 1890-1920 og að ganga um götur Eyrarbakka því eins og að ferðast aftur í tímann. Þar má finna Húsið sem var byggt árið 1765 og hýsir nú Byggðasafn Árnesinga og Sjóminjasafnið. Í þorpinu er einnig tjaldstæði, farfuglaheimili, gistihús og veitingastaður. Á Eyrarbakka er upplagt að ganga með fram fjörunni, horfa á fuglalífið og brimið brjóta ströndina. Norðvestan við Eyrarbakka er fallegur trjálundur að Hallskoti og Fuglafriðlandið í Flóa sem er tilvalið til fuglaskoðunar, varpstaður votlendisfugla og er á alþjóðlegum lista yfir mikilvæg votlendissvæði. ÁRBORGSveitarfélagið Árborg varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps árið 1998. Árborg býður upp á fjölmarga möguleika til afþreyingar og slökunar, þar á meðal mikið úrval veitingastaða, kaffihúsa, listagallería, safna og sundlauga auk 9 holu golfvallar á Selfossi. Frábær staðsetning fyrir hvern sem vill vera í nærveru við náttúruna og berja stórbrotið landslag augum, allt frá fjalla til fjöru.    
FLÓAHREPPUR
Flóahreppur er falleg og friðsæl sveit á Suðurlandi sem nær yfir austanverðan Flóann og liggur á milli laxveiðiánna Þjórsár og Hvítár. Svæðið er sögulegt og skartar fjölbreyttri og fallegri náttúru sem einkennist meðal annars af fjölbreytilegu gróðurfari og miklu fuglalífi. Flóahreppur samanstendur af þremur hreppum, Hraungerðis-, Gaulverjabæjar- og Villingarholtshreppi. Sveitarfélagið er 290 km² að stærð og búa 640 manns í hreppnum.  Í Flóahreppi er að finna mestu víðsýni í byggð á landinu. Frá Þjórsárveri er fjallahringurinn líklega hvergi á Íslandi víðari og meiri. Til norðurs sést til Þórisjökuls og í suðri blasa Vestmannaeyjar við. Til vesturs má sjá allt til Fagradalsfjalls á Reykjanesi og til Mýrdalsjökuls í austri. Á milli er svo stórkostleg fjallasýn; Selvogsheiði, Skálafell, Ingólfsfjall, Búrfell, Kálfstindar, Hlöðufell, Hestfjall, Vörðufell, Hekla, Tindfjöll, Þríhyrningur, Eyjafjallajökull og Seljalandsmúli.  Urriðafoss er í Flóahreppi í hinni voldugu Þjórsá. Mesta hraunbreiða jarðar, Þjórsárhraunið mikla, liggur undir stærstum hluta Flóans en það er mesta hraun sem runnið hefur á jörðinni í einu gosi frá því að ísöld lauk. Hraunið kom upp í miklu eldgosi austan Þórisvatns fyrir um 8.700 árum. Gossprungan var 20-30 km stór en úr henni kom upp gífurlegt magn hrauns, eða allt að 30 km³. Hraunið rann yfir Skeið, Flóa og í sjó framundan Stokkseyri og Eyrarbakka, um 140 km frá eldstöðvunum. Menningarsagan í Flóanum hefur djúpar rætur og inniheldur vel kunnugt handverk og verslun, fyrri ára. Á svæðinu hefur í gegnum tíðina verið einstaklega mikið um hugvits- og hagleiksfólk og hafa komið merkar uppfinningar héðan. Má þar nefna Flóaáveituna en hún var mikið stórvirki á sínum tíma. Framkvæmdir við hana hófust vorið 1922 og mun hún hafa náð yfir 12 þúsund hektara land. Með tilkomu hennar urðu mikil umskipti í búskap og atvinnuháttum í Flóanum. Landbúnaður er helsta atvinnugreinin í sveitarfélaginu en ferðaþjónustan fer stöðugt vaxandi.  Finna má ýmsa afþreyingarmöguleika og þjónustu eins og gistingar, söfn og handverkshús, sveitabúð, ferðamannafjárhús o.fl.. Það er því óhætt að segja að Flóahreppur sé lifandi samfélag með fjölbreytt mannlíf sem býður upp á mikla afþreyingu, fjölda viðburða og samkoma, nýjar hefðir og rótgrónar. Þjóðtrúin lifir í örnefnum og sögnum. Ein af Íslendingasögunum, Flóamanna saga, varðveitir minningu svæðisins sem einnig er paradís fyrir fuglalífs- og náttúruunnendur.
FLÚÐIR / Hrunamannahreppi
Flúðir er vaxandi þéttbýliskjarni og vinsæll staður að heimsækja. Fjölbreytt þjónusta og afþreying er í boði á Flúðum og næsta nágrenni í sveitinni. Gisting er í öllum flokkum; hótel, gistiheimili, bændagisting, heimagisting, og tjaldsvæði. Veitingastaðir eru líka af öllum sortum svo allir geta valið það sem þeim finnst best. Farmers Bistro Flúðasveppir, Minilik, Hótel Flúðir, Gistiheimilið Flúðum, Litli fiskikofinn og Kaffisel, allir með sína sérstöðu og flestir leggja áherslu á hráefni úr nærumhverfi. Afþreying er mjög fjölbreytt, fyrir alla aldurshópa og áhugasvið. Sundlaugin Flúðum og Gamla laugin (Secret Lagoon), Selsvöllur 18 holu golfvöllur, Markavöllur fótboltagolfvöllur, frisbígolf í Lækjargarðinum, hestaferðir í Syðra-Langholti, Samansafnið á bænum Sólheimum og dúkkusýning á Flúðum. Gönguleiðir, fjöll til að klífa og fjölbreyttir útivistarmöguleikar allt um kring. Jarðhiti er mikill á svæðinu, óþrjótandi uppspretta af heitu vatni og landið ákjósanlegt til ræktunar. Fjöldi garðyrkjubýla er í sveitinni og auðvelt er að kaupa sér hollar og góðar matvörur beint frá býli t.d. í Litlu Melabúðinni. Flúðir eru miðsvæðis á Suðurlandi og stutt í margar helstu náttúruperlur. Á sumrin er mikil veðursæld og oft háar tölur á hitamælunum á Flúðum.
HELLA / Rangárþingi ytra
Velkomin í Rangárþing Ytra, eitt landfræðilega stærsta sveitarfélag landsins. Íbúar sveitarfélagsins eru tæplega 2000 og býr um helmingur íbúanna á Hellu og um helmingur í dreifbýli. Sveitarfélagið er eitt þriggja sveitarfélaga í Rangárvallasýslu, en sýslan liggur um miðbik Suðurlands og þar er að finna einstök náttúrugæði, hvort sem er á láglendi eða hálendi. Gosbeltið liggur þvert um sveitarfélagið og þar er að finna eitt virkasta eldfjall Íslands, Heklu, sem er 1.491 m.y.s. og hefur gosið sex sinnum síðustu hundrað árin. Nokkurn jarðhita má finna í Rangárþingi ytra, ekki síst Torfajökulssvæðið sem er eitt mesta jarðhitasvæði Íslands. Ein vinsælasta laxveiðiá landsins, Ytri-Rangá, rennur um sveitarfélagið og er afar vinsæl meðal veiðimanna. Veiðivötn eru á Landmannaafrétti og þangað sækja árlega þúsundir veiðimanna í stangveiði og eru vötnin afar gjöful af bleikju og urriða, en fiskirækt í Veiðivötnum er í höndum Veiðifélags Landmannaafréttar. Margar vinsælar gönguleiðir má finna í Rangárþingi ytra og er Laugavegurinn þeirra þekktastur. Önnur leið, minna þekkt, er Hellismannaleið. Báðar eru mjög áhugaverðar. Í Rangárþingi ytra má finna alla almenna þjónustu og er þjónustustigið afar hátt. Þar eru tveir leikskólar og tveir grunnskólar, heilsugæsla, tvær sundlaugar, verslanir, banki, bifreiðaverkstæði, hjúkrunar- og dvalarheimili, hótel og ýmislegt fleira. Íslenski hesturinn er í öndvegi í Rangárþingi ytra og er gríðarlega mikil afþreying honum tengd. Önnur afþreying eru söfn og sýningar, Buggy-ferðir, jeppaferðir, fiskveiði og fleira. Nánari upplýsingar um þetta allt saman er einmitt að finna hér á síðunni. English      
HÖFN / Hornafirði
Höfn er eini þéttbýliskjarninn í Ríki Vatnajökuls og þar er mikil og góð þjónusta enda þjónar Höfn stóru dreifbýlissvæði í kring. Þar er að finna hótel, veitingastaði, söfn, tjaldsvæði, verslanir, bensínsstöðvar, pósthús, apótek o.fl. Höfn er stundum nefnd humarbærinn og árlega er haldin þar vegleg Humarhátíð sem er ein af elstu bæjarhátíðum á Íslandi. Það er skylda að bragða á humar þegar komið er á Höfn og af nógu að taka þar sem hver einasti veitingastaður í bænum býður upp á gómsæta humarrétti.
HVERAGERÐISBÆR
Hveragerði býður upp á margvíslega afþreyingu fyrir alla aldurshópa, enda fjöldinn allur af fyrirtækjum, félagasamtökum og stofnununum sem tengjast þjónustu á einn eða annan hátt. Staðsetning bæjarins innan um ósnortna náttúru steinsnar frá höfuðborginni er vel til þess fallin að sækja staðinn heim og stunda útivist og heilsueflingu, verslun að einhverju tagi eða bara taka því rólega í fallegu og afslöppuðu umhverfi. Á sumrin er óvíða í bæjum landsins jafn fjölskrúðugur gróður og í Hveragerði, á veturna skarta garðyrkjustöðvarnar sínu fegursta, með geislandi fölgulri birtu sem ber við himinn.  
HVOLSVÖLLUR / Rangárþingi eystra
Í Rangárþingi eystra búa um 2000 manns og nær sveitarfélagið frá Eystri-Rangá í vestri til Jökulsár á Sólheimasandi í austri. Sveitarfélagið er mikið landbúnaðarhérað og einnig er ferðaþjónustan blómleg atvinnugrein enda má þar finna einstakar náttúruperlur, fallegar gönguleiðir og þekkta sögustaði. Áfangastaði eins og Seljalandsfoss, Skógafoss, Þórsmörk og Eyjafjallajökul má finna í sveitarfélaginu.Hvolsvöllur er þéttbýlis- og þjónustukjarni sveitarfélagsins og þar búa um 1000 manns. Helstu atvinnuvegir eru þjónusta fyrir landbúnað, almenn þjónusta fyrir íbúa, ferðaþjónusta og einnig má nefna að á Hvolsvelli rekur Sláturfélag Suðurlands stærstu kjötvinnslu landsins. Hvolsvöllur hefur það sérkenni að vera eina þéttbýlið á Íslandi sem ekki hefur verið byggt upp við sjó eða árfarveg heldur er þéttbýlið algjörlega byggt upp sem miðstöð fyrir þjónustu. Hvolsvöllur er aðeins 100 km. frá Reykjavík og því tilvalin staðsetning til að ferðast út frá um Suðurlandið og Suð-Austurland. Eftir góðar dagsferðir er hægt að finna góða gisti- og afþreyingamöguleika á Hvolsvelli og í öllu sveitarfélaginu. Aðeins 20 km. frá Hvolsvelli er svo Landeyjahöfn þaðan sem Herjólfur siglir til Vestmannaeyja stóran hluta úr árinu.Á Hvolsvelli finnur þú til dæmis LAVA centre sem að er eldfjalla- og jarðskjálftasýning fyrir alla aldurshópa. Í LAVA er bæði hægt að horfa á stutta kvikmynd um eldfjöll og eldvirkni sem og fara í gegnum stórbrotna gagnvirka sýningu. Hægt er svo að ganga upp á þak húsnæðisins og njóta útsýnisins til allra átta. Á Hvolsvelli má einnig finna Sveitabúðina Unu þar sem að hægt er að kaupa grænmeti og kjötvörur beint frá býli sem og ýmiskonar handverk. Í Unu má líka njóta listasýninga og hægt er að skoða myndir af Njálureflinum sem er 90m hördúkur sem Brennu-Njálssaga var saumuð í.Á Hvolsvelli er hægt að finna gróið svæði í miðbænum þar sem hægt er að hvíla lúin bein, leyfa börnunum að skoða leiktækin og jafnvel fara í nestisferð. Þar má líka finna sýningu á sumrin þar sem áhugaljósmyndarar í sveitarfélaginu sýna verk sín.Á Hvolsvelli er ýmis þjónusta eins og banki, veitingastaðir, kjörbúð, gjafavöruverslanir, ísbúð apótek, heilsugæslustöð, fullbúin íþróttamiðstöð, sundlaug, hótel, gesthús, tjaldsvæði, bílaverkstæði og bensínstöðvar.  
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR / Skaftárhreppi
Kirkjubæjarklaustur er eini þéttbýliskjarninn í Skaftárhreppi. Í Skaftárhreppi eru margir gististaðir og upplagt að dvelja þar og fara í dagsferðir. Margar náttúruperlur Íslands eru stutt frá Klaustri: Fjaðrárgljúfur, Fagrifoss, Langisjór, Eldgjá, Lakagígar og Skaftáreldahraunið. Góðar dagsferðir eru í Skaftafell eða Jökulsárlón. Á Klaustri er Ástarbrautin, mjög falleg 5 km gönguleið sem byrjar við Systrafoss. Gengið er yfir heiðina ofan við þorpið og er útsýni mjög skemmtilegt. Kirkjugólfið er á þessari leið en það er náttúrusmíð þar sem sér ofan á stuðlaberg. Kirkjugólfið er friðlýst náttúruvætti. Önnur áhugaverð gönguleið er um Landbrotshólana sem eru óteljandi gervigígar. Leiðin er kölluð Hæðargarðsleið og byrjar við Skaftárbrúna. Sögur segja að aldrei hafi heiðinn maður búið á Kirkjubæ á Síðu. Bæjarnafnið breyttist í Kirkjubæjarklaustur eftir að þar var nunnuklaustur á árunum 1186 – 1554. Örnefni og þjóðsögur tengjast klausturtímanum. Íbúar á Klaustri eru um 280 og þar er Kirkjubæjarskóli á Síðu er grunnskóli Skaftárhrepps, Heilsuleikskólinn Kæribær, Hjúkrunar- og dvalarheimilið Klausturhólar. Við grunnskólann er íþróttamiðstöð þar sem er íþróttasalur, líkamsrækt og sundlaug, opið almenningi allt árið. Prestur hefur setið á Kirkjubæjarklaustri frá 1931, læknir frá 1950 og dýralæknir frá 1974. Skaftárhreppur er hluti af Kötlu jarðvangi og stór hluti hreppsins er vesturhluti Vatnajökulsþjóðgarðs. Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs er á Klaustri. Á vefnum eldsveitir.is má finna meira um sögu, menningu og náttúru í Skaftárhreppi.  
LAUGARÁS / Bláskógabyggð
Laugarás er lítið þorp við Hvítá, skammt frá Skálholti.Dýragarðurinn í Slakka í Laugarási er vinsæll staður að heimsækja fyrir alla fjölskylduna. Þar eru íslensk húsdýr, fuglar og smádýr sem hægt er að skoða og klappa. Grundvöllur byggðarinnar er annars vegar heita vatnið og hins vegar að þorpið er í miðju uppsveitanna, stutt er í helstu náttúruperlur svæðisins og sögustaði. Allskyns grænmeti og blóm eru ræktuð í gróðurhúsum allt árið. Heilsugæslustöðin í Laugarási þjónar öllum uppsveitum Árnessýslu.  
LAUGARVATN / Bláskógabyggð
Skólaþorpið Laugarvatn hefur verið vagga menntunar á svæðinu allt frá 1928.Fjölbreytt þjónusta er í boði á Laugarvatni og í sveitinni í kring og ýmsir afþreyingarmöguleikar. Tjaldsvæði, farfuglaheimili, hostel, íbúðir, bændagisting og bústaðir. Veitingastaðir í þorpinu eru hver með sína sérstöðu og áhersla lögð á hráefni úr nærumhverfi. Ferðamannafjós og veitingastaður er í Efstadal II, þar er allt beint frá býli og heimalagaður ís. Hægt er að bregða sér í sund og gufu, fara í golf eða veiða. Verslun er á Laugarvatni og á Laugardalshólum eru seld matvæli beint frá býli. Fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu góð íþróttaaðstaða. Boðið er upp á hellaskoðun og útiafþreyingu fyrir hópa. Fjölbreytt fuglalíf er í skóginum og við vatnið og fallegar gönguleiðir. Skógræktin byggði eldaskála/bálhús í skóginum sem gaman er að koma í og þar er einnig tekið á móti hópum. Laugarvatnsfjall býður upp á víðáttumikið útsýni. Upp frá Miðdal, um 3 km frá Laugarvatni, er vinsæl gönguleið upp að Gullkistu. Laugarvatn er á Gullna hringnum og stutt er í allar helstu náttúruperlur.  
ÖLFUS
Sveitarfélagið Ölfus er á suðvesturhorninu um 50 km frá Reykjavík. Það búa rúmlega 2000 manns í sveitarfélaginu og þar af um 1600 manns í Þorlákshöfn, sem er eina þéttbýlið í sveitarfélaginu. Í Ölfusi er fjölbreytt landslag með svörtum sandfjörum, klettabjörgum, hraunbreiðum, hellum og háhitasvæðum svo eitthvað sé nefnt. Frá Þorlákshöfn og sveitarfélaginu öllu er einstakt útsýni í allar áttir t.d. yfir Heklu, Eyjafjallajökul og til Vestmannaeyja. Í Þorlákshöfn er einn af bestu brimbrettastöðum á Íslandi þar sem brimbrettakappar alls staðar úr heiminum koma til að prófa öldurnar. Fyrir byrjendur eru öldurnar í fjörunni tilvaldar en fyrir þá sem lengra eru komnir eru öldurnar við útsýnisskífuna hjá Hafnarnesvita meira krefjandi. Lítil ljósmengun og víðáttumikið útsýni í Ölfusi gerir svæðið kjörið til norðurljósaskoðunar. Upplýsingamiðstöð Ölfuss er staðsett á Bæjarbókasafni Ölfuss og er opin frá kl. 12:30 til 17:30 alla virka daga. Tjaldsvæðið er staðsett fyrir aftan Íþróttamiðstöð Þorlákshafnar, við hliðina á Þorlákskirkju. Upplýsingamiðstöð ÞorlákshafnarHafnarberg 1815 ÞorlákshöfnSími: 480 3830Opnunartími: Alla virka daga frá kl. 12:30 – 17:30
REYKHOLT / Bláskógabyggð
Reykholt í Bláskógabyggð er ört vaxandi þorp sem byggðist upphaflega í kringum jarðhita á fyrri hluta 20 aldar. Uppi á holtinu fyrir ofan þorpið sést myndarlegur reykur sem stígur upp af hvernum, en hann er lífæð þorpsins. Reykholt er eitt blómlegasta garðyrkjuþorp landsins í dag. Þar er að finna stórar garðyrkjustöðvar sem rækta grænmeti, blóm, ber og runna; Gufuhlíð, Friðheimar, Espiflöt, DAGA, Jarðarberjaland og Kvistar. Hægt er að versla beint frá bónda, nýtínd ber hjá DAGA og í Litlu tómatbúðinni í anddyri Friðheima er hægt að kaupa grænmeti og ýmsar góðgætavörur. Í þorpinu er grunnskóli, leikskóli, íþróttahús, sundlaug, vinsælt tjaldsvæði og félagsheimilið Aratunga. Í Aratungu eru ýmsir menningarviðburðir haldnir og margir muna eftir sveitaböllunum þar í gamla daga. Í Reykholti er fjölbreytt þjónusta. Má þar nefna verslunina Bjarnabúð en oft hefur heyrst til sveitunga segja “ef það fæst ekki í Bjarnabúð þá þarftu það ekki”. Þar má m.a. finna nýbakað hverarúgbrauð. Ýmiskonar gistimöguleikar eru í boði; Blue vacations býður upp á gistingu í heilsárs bústöðum með útsýni yfir sveitina og gistiheimilin Húsið, Hvíta Húsið, Blue Grove Guesthouse, Aska. Tveir veitingastaðir eru á staðnum, hvor með sína sérstöðu. Restaurant Mika sem er meðal annars þekkt fyrir handgert konfekt og Friðheimar sem er þekkt fyrir einstaka matarupplifun í gróðurhúsi sem og hestasýningar. Ýmis önnur afþreying er í boði á svæðinu. Reykholt er á Gullna hringnum og stutt í allar helstu náttúruperlur, Geysi, Gullfoss, Þingvelli og fleiri fallega staði. Reykholt er í um 1 klst. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Hér má sjá skemmtilegt myndband úr Reykholti í Bláskógabyggð  
SELFOSS / Árborg
Selfoss er stærsti þéttbýlisstaðurinn á Suðurlandi og er miðstöð verslunar, þjónustu og iðnaðar. Bærinn er 57 km frá höfuðborgarsvæðinu og þar búa 8.832 manns. Á Selfossi eru fjölmargir veitingastaðir og kaffihús auk verslana. Þar er einnig Sundhöll sem hefur inni- og útilaug, barnalaug með rennibrautum, vaðlaug, vatnsgufu, sauna og heita og kalda potta. Norðan við Selfoss er útivistarsvæðið Hellisskógur með skemmtilegum göngustígum með fram bökkum Ölfusár. Hinum megin við ánna er svo 9 holu golfvöllurinn Svarfhólsvöllur. Hægt er að afla meiri upplýsinga hjá Upplýsingamiðstöð ferðamála á Austurvegi 2. ÁRBORGSveitarfélagið Árborg varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps árið 1998. Árborg býður upp á fjölmarga möguleika til afþreyingar og slökunar, þar á meðal mikið úrval veitingastaða, kaffihúsa, listagallería, safna og sundlauga auk 9 holu golfvallar á Selfossi. Frábær staðsetning fyrir hvern sem vill vera í nærveru við náttúruna og berja stórbrotið landslag augum, allt frá fjalla til fjöru. Íbúar í Sveitarfélaginu Árborg telja 10.346 manns (september 2020).  
SKÓGAR
Skógar er lítið þorp með um 25 íbúa en þrátt fyrir smæð sína er hægt að finna margvíslega gisti- og afþreyingarmöguleika og nokkur veitingahús eru á staðnum. Skógar var áður fyrr skólastaður og ein merkasta byggingin á staðnum er gamli héraðsskólinn sem hóf starfsemi sína árið 1949. Skólinn er nú nýttur sem gististaður á sumrin. Skógafoss er ein allra vinsælasta náttúruperla Íslands enda fossinn magnaður í allri sinni dýrð. Byggðasafnið í Skógum er glæsilegt safn sem samanstendur af almennu byggðasafni, húsasafni og samgöngusafni. Fyrir ofan byggðasafnið og gamla héraðsskólann er Völvuskógur og eru göngustígar um allan skóginn. Önnur og heldur frægari gönguleið hefur upphafspunkt á Skógum en göngur á Fimmvörðuháls hefjast jafnan á Skógum og enda í Þórsmörk.  
SÓLHEIMAR / Grímsnes- og Grafningshreppi
Sólheimar er einstakt samfélag þar sem búa og starfa rúmlega 100 manns saman. Íbúar Sólheima leggja metnað sinn í að taka vel á móti gestum og eru allir velkomnir í heimsókn. Skoðaðu hvað er á döfunni, taktu þátt í því sem er í boði og fylgstu með skemmtilegu og líflegu samfélagi Sólheima inná: Instagram: solheimareco   Facebook: Sólheimar  
STOKKSEYRI / Árborg
Á Stokkseyri búa 559 manns í heillandi þorpi sem er þekkt fyrir fuglalíf, fagra fjöru og öflugt lista- og menningarlíf. Gömul vinnslustöð fyrir sjávarafurðir hefur nú öðlast nýtt líf sem Menningarverstöðin og hýsir vinnustofur, gallerí, Draugasafnið og Álfa- og Norðurljósasafnið. Á Stokkseyri er Veiðisafnið sem er með uppstoppuð dýr til sýnis, bæði fugla og spendýr, og Þuríðarbúð sem er endurgerð sjóbúð og lýsir vel aðbúnaði verkbúðarfólks á árum áður. Í þorpinu er einnig einn rómaðasti sjávarréttarstaður landsins, útisundlaug, kajakferðir og tjaldstæði. Austan við Stokkseyri er Knarrarósviti sem var byggður 1938 og gangsettur ári seinna. Hægt er að nálgast meiri upplýsingar hjá Upplýsingamiðstöðinni staðsett í kaffihúsinu Gimli. ÁRBORGSveitarfélagið Árborg varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps árið 1998. Árborg býður upp á fjölmarga möguleika til afþreyingar og slökunar, þar á meðal mikið úrval veitingastaða, kaffihúsa, listagallería, safna og sundlauga auk 9 holu golfvallar á Selfossi. Frábær staðsetning fyrir hvern sem vill vera í nærveru við náttúruna og berja stórbrotið landslag augum, allt frá fjalla til fjöru. Íbúar í Sveitarfélaginu Árborg telja 10.346 manns (september 2020).  
ÞORLÁKSHÖFN / Ölfusi
Sjávarbær við Suðurströndina. Um 40 mínútna akstur frá Reykjavík og 15 mínútna akstur frá Hveragerði. Kauptúnið dregur nafn sitt af Þorláki helga Skálholtsbiskupi (1133-1193). Útræði hófst snemma frá Þorlákshöfn. Meðan gert var út á áraskipum var ekki óalgengt að róið væri á 20-30 skipum frá Þorlákshöfn og hafa íbúarnir þá verið um 3-400 yfir vertíðina. Núverandi þéttbýli myndaðist um og upp úr miðja síðustu öld í kjölfar uppbyggingar öflugrar útgerðar á vegum Meitilsins hf. Mikil fjólksfjölgun varð einnig á áttunda áratugnum í kjölfar eldgossins í Heimaey. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Þorlákshöfn á síðustu árum. Íþróttahús og sundaðstaða eru til fyrirmyndar og glæsilegir íþróttavellir í næsta nágrenni auk leikaðstöðu fyrir börn. Tjaldstæði er við íþróttahúsið en einnig er gisitheimili í bænum, upplýsingamiðstöð á bókasafninu, íþróttagolfvöllur og 18 holu sandgolfvöllur rétt utan við bæinn. Sett hafa verið upp nokkur söguskilti á svonefndu hverfisverndarsvæði þar sem enn er hægt að greina minjar frá fyrri tímum verstöðvarinnar. Hægt er að ganga á milli skilta frá Þorlákskirkju. Ferðaþjónusta er ung atvinnugrein í Þorlákshöfn en er mikið stunduð í dreifbýli Ölfuss. Þar eru ýmsir gististimöguleikar, veitingastaðir, kaffihús og boðið upp á hestaferðir. Gerðar hafa verið góðar reiðleiðir um Ölfusið. Víða er veiði í vötnum og í ósum Ölfusár. Selvogurinn vestan við Þorlákshöfn, jarðhitasýning í Hellisheiðarvirkjun og strandlengjan að veitingastaðnum Hafinu Bláa eru vinsælir viðkomustaðir fyrir ferðamenn.
ÞYKKVIBÆR / Rangárþingi ytra
Byggðahverfi við Hólsá og sunnan við Safamýri. Áður var Þykkvibær umflotinn á alla vegu og kýr bændanna varð að reka á sund til að koma þeim á haga. Fólk varð að vaða upp í mitti eða dýpra til að komast á milli bæja og erfitt var að fást við heyskap. Auk þess brutu vötnin landið. Árið 1923 var öflug fyrirhleðsla byggð þvert yfir Djúpós og er nú akvegur eftir stíflugarðinum.Byggð er gömul í Þykkvabæ, fyrst getið um 1220. Áður var nokkurt útræði frá sandinum en oft urðu þar slys enda ill lending. Barnaskóli var settur í Þykkvabæ árið 1892 og var hann fyrsti sveitaskóli í Rangárvallasýslu. Eftir að hlaðið var fyrir Djúpós jókst þar mjög túnrækt og er Þykkvibærinn myndarbyggð í hvívetna.Kartöflurækt er mikil í Þykkvabæ.    
VÍK / Mýrdalshreppi
Mýrdalshreppur er eitt hinna þriggja sveitarfélaga innan Kötlu jarðvangs. Vík er við miðju jarðvangsins og um leið syðsti bær landsins. Hreppurinn markast af Mýrdalsjökli til norðurs, sem eldfjallið Katla dvelur undir; Jökulsá á Sólheimasandi til vesturs, Blautukvísl til austurs og svörtum fjörum til suðurs. Vík er eina sjávarþorpið á Íslandi sem aldrei hafði höfn. Þrátt fyrir ævarandi hafnleysu sóttu heimamenn sjóinn til fiskveiða og vöruflutninga allt fram á miðja tuttugustu öld. AfþreyingMýrdalshreppur er sannarlega staður útivistar og ævintýra. Í nágrenni Mýrdalsjökuls má nefna fjórhjólaferðir á Sólheimasandi, jöklagöngur á Sólheimajökli og kayakaferðir á lóni jökulsins; að ógleymdum vélsleðaferðum á sjálfri jökulbreiðunni og íshellaferðum allan ársins hring. Í nágrenni Víkur má koma blóðinu á hreyfingu í Zip-line ævintýri eða svifvængjaflugi fyrir þau allra hugrökkustu. Í útjaðri Víkurþorps er flottur golfvöllur í fallegri náttúru. Reiðtúr í okkar fögru Víkurfjöru með útsýni til Reynisdranga er að auki ógleymanleg upplifun. Söfn og sýningarÍ Vík má einnig finna söfn og sýningar. Þar má helst nefna hina einstöku hraunsýningu Icelandic Lava Show þar sem 1100 °C heitu, fljótandi hrauni er hellt inn í sal áhorfenda. Sjón er sögu ríkari. Kötlu jarðvangur heldur úti jarðfræði sýningu í Kötlusetri, þar sem aðgangur er ókeypis. Gegnt Kötlusetri má svo finna Sjóminjasafn þar sem stærsti gripurinn er hið sögufræga vöruflutningaskip Skaftfellingur. Þar er saga útræðis, siglinga og skipsstranda á fjörum Skaftafellssýslna sögð á lifandi hátt. GönguleiðirNáttúrufegurð einkennir svæðið með grösugum hlíðum í faðmlagi við svartar fjörurnar og hvítan jökulinn. Frá bænum má ganga upp á Reynisfjall og njóta útsýnis yfir Atlantshafið, Reynisdranga og brött fuglabjörg. Leiðin er stikuð með gulum merkingum og hefst við Víkurbraut. Önnur gönguleið hefst aftan við Víkurkirkju og leiðir göngufólk upp á Höttu, hæsta fjall Mýrdalshrepps. Þaðan er útsýni yfir Heiðardalinn og Mýrdalsjökul til norðurs. Enn fleiri leiðir má að auki finna í Þakgili, skammt frá Vík. Kort og upplýsingar um þessar og fleiri gönguleiðir í Mýrdalshreppi má nálgast í upplýsingamiðstöð Kötluseturs í Brydebúð, Víkurbraut 28.