Það er enginn skortur á hverskonar sýningum vítt og breitt um landið og þær eru tileinkaðar öllu frá leikföngum upp í jarðskjálfta og eldgos. Listsýningar eru líka fjölbreytilegar og þær má finna á ýmsum vettvangi.
Gestastofa og upplýsingamiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri, Skaftárstofa
Upplýsingamiðstöð ferðamanna er staðsett í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri. Upplýsingamiðstöðin er rekin af Vatnajökulsþjóðgarði í samstarfi við Skaftárhrepp, Kirkjubæjarstofu og Frið og frumkrafta.
Við Skaftárstofu byrjar skemmtilegur fræðslustígur fyrir fjölskylduna sem endar við sundlaugina á Kirkjubæjarklaustri.
Sýning um mosann – Mosar um Mosa frá Mosum til Mosa
Stuttmyndir:Eldgosið í Grímsvötnum 2011Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
Opnunartímar gestastofu
Þátttakandi í VAKINN - gæða og umhverfiskerfi íslenskrar ferðaþjónustu.
View
LAVA centre
LAVA – Eldfjalla og jarðskjálftamiðstöð Íslands er allsherjar afþreyingar- og upplifunarmiðstöð sem helguð er þeim gríðarlegu náttúruöflum sem hófu að skapa Ísland fyrir nærri 20 milljón árum síðan og eru enn að. LAVA centre gefur þér ekki aðeins kost á að upplifa þessi náttúruöfl með gagnvirkum og lifandi hætti heldur tengir þig einnig við náttúruna sem við þér blasir; Heklu, Tindfjöll, Kötlu, Eyjafjallajökul og Vestmannaeyjar.
LAVA er “glugginn” inn í jarðvanginn, Katla Geopark, ásamt því að vera alhliða upplýsinga, sölu- og þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn. LAVA kemur einnig á framfæri, með beinum hætti, upplýsingum um jarðhræringar, eldgos og aðrar náttúruhamfarir í samvinnu við Almannavarnir, Veðurstofu Íslands og lögreglu.
LAVA er kjörinn viðkomustaður fyrir alla sem hafa áhuga á að læra meira um jarðfræði Íslands, sjá og finna fyrir kraftinum sem liggur undir landinu. Lifandi og skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna!
Aðgangsverð fyrir sýningu, 12 mínútna kvikmynd og útsýnispall er 3590 kr og fjölskyldu pakki er á 8975 kr (fullorðnir + 1 barn 6-15 ára greiða, aðrir 15 ára og yngri fá frítt).
Allar upplýsingar um verð má finna á heimasíðunni www.lavacentre.is og þar er einnig hægt að kaupa miða fyrirfram. Einnig er auðvelt og fljótlegt að kaupa miða við innganginn.
View
Þórbergssetur
Í Þórbergssetri er veitingasala,gestamóttaka, salerni og sýningarsalir. Sýning Þórbergsseturs er fjölbreytt upplifunarsýning er tengist ævi og verkum skáldsins, en einnig sögu íslensku þjóðarinnar. Sjá má breytingar og þjóðlifsmyndir frá frumstæðu bændaþjóðfélagi yfir í bæjarlíf og búsetu í ört vaxandi höfuðborg. Textar úr verkum Þórbergs varða leiðina á fallega hönnuðum ljósaskiltum, en einnig er hægt að fá hljóðleiðsögn með viðbótarefni. Þannig er sýningin sambland af fræðsluefni, safni og sagnaskemmtan og gengið er inn í leikmyndir þar sem reynt er að ná andblæ liðinna ára og njóta um leið stórbrotinna lýsinga meistarans sem leiðsögn um staðinn. Vakin er athygli á að sýningin höfðar einnig mjög vel til barna og unglinga.
Hópar eða fjölskyldur geta bókað leiðsögn um Þórbergssetur þar sem heimamenn fræða gesti um lífið í Suðursveit og hverning sögusvið bóka Þórbergs opnar sýn inn í horfna veröld liðins tíma.
Arkitekt að húsinu er Sveinn Ívarsson og hönnuður sýningar Jón Þórisson.
Opið er allt árið, en í sumar verður opnunartími á sýninguna frá klukkan 10 á morgnana til klukkan 6 á kvöldin.
Veitingahús Þórbergsseturs er opið fyrir almenning frá klukkan 10 - 8 í sumar.
Í boði eru ýmsir þjóðlegir réttir úr heimabyggð, kjötsúpa, heimabakað brauð, samlokur, bleikjuréttir og Halalamb.
Kvöldmatur er framreiddur frá klukkan 6 til 8 á kvöldin
View
Jarðhitasýning ON við Hellisheiðarvirkjun
Jarðhitasýningin
Jarðhitasýning ON í Hellisheiðarvirkjun veitir innsýn í virkjun og nýtingu jarðvarma á Íslandi. Á sýningunni er jarðfræði, tækni og saga sett fram á aðgengilegan og skýran hátt með myndum og margmiðlunartækni.
Hellisheiðavirkjun er stærsta jarðvarmavirkjun landsins, og meðal 10 stærstu á heimsvísu, þar sem framleidd eru um 303MW af rafmagni og um 200MW af heitu vatni.Starfsfólk sýningarinnar búa yfir breiðri þekkingu um jarðfræði, jarðhita, framleiðsluna á svæðinu og nýtingu auðlindastrauma sem nýtast meðal annars til fyrirtækja innan Jarðhitagarðs ON eins og Carbfix, Climeworks, VAXA technologies og GeoSilica.
Opnunartími
Sýningin er opin alla daga fyrir utan Jóladag og Nýársdag1. nóv - 31. mars kl. 09:00-16:00 1. apríl - 31. okt kl 09.00 - 17.00Hópabókanir (10 og fleiri) og almennar fyrirspurnnir sendist á syning@or.is eða hringja í síma 591-2880.
Á heimasíðunni www.jardhitasyning.is er hægt að bóka miða fyrir einstaklinga og minni hópa.
Gönguleiðir
Á Hengilssvæðinu er flest það sem prýðir íslenska náttúru: áhugavert landslag, hvera- og gígasvæði, fjölbreytt gróðurfar, ár og stöðuvötn. Mikil vinna er lögð í frágang og landgræðslu á röskuðum svæðum vegna framkvæmda við Hellisheiðarvirkjun á líkan hátt og gert var á Nesjavöllum á sínum tíma.
Við bjóðum hópum sem ganga um svæðið velkomna í leiðsögn um Jarðhitasýninguna - https://www.on.is/umhverfid/hengillinn/
View
Icelandic Lava Show
Upplifðu alvöru rennandi hraun í návígi! Ógleymanleg skemmtun!
Icelandic Lava Show í Vík í Mýrdal endurskapar aðstæður eldgoss með því að hita hraun upp í 1100°C og hella því svo inn í sýningarsal fullum af fólki! Hvergi annars staðar í heiminum getur fólk upplifað rauðglóandi hraun í svo miklu návígi með öruggum hætti. Frábær sýning sem samtvinnar á einstaklega eftirminnilegan máta fræðslu, skemmtun og heimsklassa upplifun þar sem efniviðurinn er rennandi hraun! Sannkölluð veisla fyrir skynfærin og ógleymanleg upplifun fyrir unga sem aldna.
Icelandic Lava Show er hugarfóstur hjónanna Júlíusar Inga Jónssonar og Ragnhildar Ágústsdóttur en hugmyndin kviknaði þegar þau fóru upp að gosinu á Fimmvörðuhálsi árið 2010 og sáu hraunfossinn og ótrúlegt samspil hraunsins við ísinn allt um kring. Í lok árs 2015 sagði Júlíus starfi sínu lausu og hafa þau hjónin unnið að því að koma fyrirtækinu á laggirnar æ síðan. Það var svo í september 2018 sem Icelandic Lava Show opnaði dyr sínar fyrir gestum og gangandi og viðtökurnar hafa verið hreint frábærar líkt og sjá má á einkunnasíðum á borð við TripAdvisor og Google Maps. Hér er því um að ræða ungt og efnilegt fjölskyldusprotafyrirtæki sem er vel þess virði að heimsækja.
Nánari upplýsingar:
Lengd: ca 45-50 mínútur (fer eftir fjölda spurninga og stemmningu í salnum)
Aldur: Hentar öllum aldurshópum (en börn þurfa að vera í fylgd fullorðinna)
Staður: Víkurbraut 5, Vík í Mýrdal (í gamla Kaupfélagshúsinu)
Stund: fastir sýningartímar þar sem það tekur marga klukkutíma að bræða hraun - sjá tímasetningar og hvað er laust á icelandiclavashow.com
Mæting: það borgar sig að vera mætt/ur amk. 15 mínútum áður en sýningin hefst
Fatnaður: forðist að vera of mikið klædd því það hitnar mjög snögglega þegar rauðglóandi hraunið rennur í sýningarsalinn
Tungumál: oftast á ensku (nema ef allir í salnum skilja íslensku) - munum auglýsa séríslenskar sýningar í sumar
Hópar: Icelandic Lava Show er frábær skemmtun fyrir hópa og tekur allt að 50 manns í sæti á hverja sýningu. Hægt er aðlaga tíma að hópum. Fyrir tilboð, sendið okkur póst á info@icelandiclavashow.com
Lýsing á sýningunni sjálfri
Í upphafi er stuttur inngangur þar sem sýningarstjórinn býður alla velkomna og leiðir fólk í allan sannleika um upplifunina, hvað hún felur í sér, hvernig hugmyndin kviknaði og afhverju Vík í Mýrdal varð fyrir valinu (ca 10-12 mínútur)
Að innganginum loknum er sýnd stutt fræðslumynd af stað þar sem annars vegar er farið yfir það afhverju Ísland er svona virk eldfjallaeyja með áherslu á eldfjöllin í nágrenni Víkur. Hins vegar er sögð ótrúleg flóttasaga Jóns Gíslasonar, langafa sýningarstjórans og annar stofnanda Icelandic Lava Show, undan Kötlugosinu 1918 og hamfarahlaupinu sem því fylgdi (12 mínútur)
Hápunktur sýningarinnar er svo þegar 1100°C heitu hrauninu er hellt inn í sýningarsalinn. Það er ólýsanleg tilfinning að sjá, heyra og finna hraunið renna inn í salinn - sannkölluð veisla fyrir skynfærin! Þegar hraunið rennur inn í rökkvaðan sýningarsalinn er eins og sýningargestir verði vitni að sólarupprás, svo skært er rauðglóandi hraunið. Þá finna gestir lyktina af bráðnu hrauninu þar sem það byrjar að storkna og heyra um leið hvernig það kraumar, bullar og snarkar. Það allra tilkomumesta er þó hitinn sem skellur á sýningargestum. Það er gífurlegur hitinn sem kemur flestum á óvart. Sýningarstjórinn gerir svo alls kyns æfingar með rauðglóandi hraunið sem er heillandi að fylgjast með en um leið ótrúlega upplýsandi (ca 20-25 mínútur)
Að sýningu lokinni gefst svo öllum færi á að spyrja spurninga sem sýningarstjórinn reynir að svara eftir bestu getu. (ca 5 mínútur)
Allar nánari upplýsingar á icelandiclavashow.com
View
Hespuhúsið
Hespuhúsið er opin jurtalitunarvinnustofa þar sem gestir geta kíkt í litunarpottana og fræðst um þetta gamla handbragð. Hægt er að slaka á í setustofunni og skoðað gamla muni tengda handverki eða gömlum tímum en þar er vísir að litlu safni. Á vinnustofunni er jurtalitað band til sölu og pakkningar með uppskriftum að ákveðnum verkefnum með bandi.
Opnunartímar eru auglýstir á heimasíðunni en enginn tími er heilagur og geta gestir kíkt við hvenær sem er ef þeir láta vita á undan sér með tölvupósti eða í síma.
View
Þingvellir
Á tjaldsvæði má finna, salerni, sturtur, þvottaaðstöðu, útivaska og kolagrill. Í þjónustumiðstöðinni er kaffi- og veitingaaðstaða. Þar er einnig seld tjald- og veiðileyfi.
Sumaropnunartími (júní-ágúst):09:00 - 20:00Vetraropnunartími (september - maí):Upplýsingahlið gestastofu: 09:00-16:00Verslun og þjónustumiðstöð á Leirum: 09:00-18:00
View
ORKA TIL FRAMTÍÐAR
Gagnvirk orkusýning Landsvirkjunar er staðsett á Sogssvæðinu við Úlfljótsvatn og er í um 50 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Sýningin samanstendur af fjölbreyttum og fræðandi sýningaratriðum sem veita gestum innsýn í heim raforkunnar og hvernig raforkan er framleidd með því að beisla krafta náttúrunnar.
Líttu við í Ljósafosstöð og upplifðu af eigin raun orkuna sem býr í öllum hlutum.
Opið alla daga í vetur nema mánudaga frá kl. 11:00-16:00 og frítt inn á sýninguna.Lokað verður milli Jóla og nýárs.
View
Sesseljuhús umhverfissetur
Sesseljuhús umhverfissetur er fræðslusetur um umhverfismál og sýningarhús um sjálfbærar byggingar. Þar fer fram alhliða fræðsla um umhverfismál og haldin námskeið fyrir nemendur á grunn- og háskólastigi. Auk þess eru þar málþing, fundir og námskeið þar sem allir eru velkomnir. Sýningar um umhverfismál eru jafnframt haldnar allan ársins hring.
Í húsinu er afbragðs aðstaða til funda-, námskeiðs- og ráðstefnuhalds.
View
Svavarssafn - Listasafn Svavars Guðnasonar
Svavarssafn er lifandi og framsækið listasafn á Höfn í Hornafirði. Í safninu fer fram fjölbreytt sýningarhald á íslenskri myndlist en sérstök áhersla er lögð á tengsl við heimahagana. Sveitarfélagið Hornafjörður er víðfemt svæði sem einkennist af stórbrotnu landslagi, náttúru og birtu sem á vart sinn líka. Svavarssafn er vettvangur til þess að upplifa umhverfið í listrænu samhengi en löngum hafa íslenskir listamenn sóst eftir því að fanga sjónarspil birtunnar undir jökli.
Starfsemi safnsins endurspeglar stöðu þess sem einmenningssafn stofnað til heiðurs Svavari Guðnasyni listmálara (1909-1988). Stofn safnsins var rausnarleg gjöf frá Ástu Eiríksdóttur, ekkju listmannsins, og í dag á safnið rúmlega 500 verk eftir Svavar og fleiri hornfirska listamenn. Að jafnaði eru settar upp þrjár sýningar sem varpa ljósi á verk samtímalistamanna sem og verk úr safneign. Safnið er opið allt árið um kring og er gengið inn um Ráðhúsið.
Við bjóðum alla gesti velkomna í safnið og aðgangseyrir er enginn.
Vetraropnun1. okt-31. maíVirka daga 9:00-17:00
Sumaropnun1. júní-31. septVirka daga 9:00-18:00Helgar 13:00-17:00
View
Sjóminjasafnið Hafnleysa
Sjóminjasafnið Hafnleysa
Sjóminjasafnið Hafnleysa segir sögu sjósóknar í Vík, sem er eina sjávarþorp landsins þar semaldrei hefur verið höfn.
Skipakirkjugarður Evrópu
Sýningin hefst á sögu skipsstranda, en vitað er um hundrað og tólf skipsströnd sem urðu hér viðstrendur árin 1898 til 1982. Við strendur Vestur-Skaftafellsýslu liggja líklegahundruð skipa grafin og hefur strandlengjan löngum verið kölluðskipakirkjugarður Evrópu.
Verslun og útræði í Vík
Stuttlega er farið yfir upphaf verslunar í Vík og til sýnis eru verslunarinnréttingar úr verslunHalldórs Jónssonar kaupmanns ásamt ýmsum munum frá fyrri hluta síðustu aldar.Þá geta gestir skoðað líkön af hinum einkennandi sandabátum sem notaðir vorutil veiða og uppskipunar við sendnar strendur Suðurlandsins. Börn geta klætt sigupp í sjóklæði (stílfærð með nútíma textílefnum) og sett sig í hlutverksjómanna fyrri alda.
Skaftfellingur VE33
Það fer ekki fram hjá neinum sem kíkir inn að aðal djásn safnsins er hið rúmlega 100 ára gamlafraktskip Skaftfellingur. Skipið á glæsta og forvitnilega sögu sem rakin er ásýningunni. Hér gefur einnig að líta kafla úr heimildamyndinni í JöklannaSkjóli frá miðri síðustu öld þar sem Skaftfellingur kemur við sögu; ásamtupptökum af hinstu heimför skipsins árið 2001. Krakkar geta spreytt sig á þvíhvað hinir ólíku hlutar skipsins heita; skoðað vélarhluta skipsins og æft sig íað búa til pappírsbáta af ýmsum gerðum.
Aðgangseyrir:Fullorðnir: 500 kr.Unglingar 12-16 ára: 200 kr.Frítt fyrir börn yngri en 12 áraFrítt fyrir eldriborgara25% afsláttur fyrir hópa stærri en 10
Leiðsögn í boði gegn vægu gjaldi, hafði samband viðkotlusetur@vik.isAðgangseyrir rennur allur til reksturs ásafninu og varðveislu menningarminja
Við bjóðum upp á skemmtilegt fræðsluefni fyrir leikskólabörnog yngstu bekki grunnskóla. Áhugasamir hafi samband við kotlusetur@vik.is. Sjákynningarmyndband.Opnunartímar fylgja opnunartímum Kötluseturs. Sjá á www.kotlusetur.is
View
Hellarnir við Hellu
Upplifið einstakan ævintýraheim í hellaferð um Hellana við Hellu og heyrið söguna sem ekki hefur mátt segja um landnámið fyrir landnám.
Fræðandi og heillandi afþreying sem hentar öllum aldri og í hvaða veðrum sem er. Hellarnir við Hellu eru staðsettir við þjóðveg 1 í aðeins um klukkutíma akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Tólf fornir manngerðir hellar hafa fundist í landi Ægissíðu við Hellu og fjórir þeirra hafa nú verið opnaðir. Hellarnir eru friðlýstir og þeir sýndir með leiðsögn. Fjölskyldan á Ægissíðu vinnur að því að byggja upp og varðveita umhverfi og sögu hellanna í samvinnu við nærsamfélagið og Minjastofnun Íslands.
Í hellunum má t.d. finna stórmerka krossa, gamlar veggjaristur, myndir, syllur og innhöggvin sæti. Leyndardómur umlykur hellana og öldum saman hefur fólk velt fyrir sér hvort hellarnir séu gerðir af pöpum og hve gamlir þeir séu.
View
Skyrland
Skyrland er sýning um sögu skyrs í Mjólkurbúinu á Selfossi. Upplifun, smakk og fróðleikur á sýningu um SKYR, ofurfæðuna sem nýtur nú vinsælda um allan heim.
View
Fischersetur Selfossi
Í Fischersetrinu er verið að segja sögu skákmeistarans Róbert James Fischer. Auk þess er þarna félagsleg aðstaða fyrir Skákfélag Selfoss og nágrennis og aðra er vilja tefla og skákmót eru haldin. Ennfremur er þarna vísir að bókasafni um skákina, þar sem fólk getur sest niður og aflað sér frekari fróðleiks um skáklistina. Þá eru þarna fyrirlestra og kynningar á efni er tengjast skáklistinni.
Í setrinu er verið að sýna muni og myndir sem tengjast skákmeistaranum Bobby Fischer, eins og hann er jafnan nefndur. Aðallega eru þetta munir og myndir tengdir veru skákmeistarans hér á Íslandi og ber þar hæst skákeinvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Ennfremur eru munir og myndir frá síðustu æviárum hans hér á landi eða eftir að hann gerðist íslenskur ríkisborgari.
Hér er um að ræða skáksetur sem heldur uppi minningu skákeinvígis aldarinnar, þjónar ferðamönnum sem vilja fræðast meira um Fischer og eflir áhuga og iðkun skáklistarinnar.
Heimsmeistarinn hvílir svo í Laugardælakirkjugarði, sem er rétt austan við Selfoss.
Opið er frá 13:00-17:00 alla daga vikunnar, frá 1. júní - 22. ágúst, og á öðrum tímum opnað samkvæmt óskum.
View
Hólmur ferðaþjónusta
Í gamla íbúðarhúsinu eru sex herbergi tveggja og eins manna , fyrir 10 manns Í húsinu er setustofa þar sem möguleiki er að laga kaffi og te.
Yfir vetrartímann er opin eldunaraðstaða fyrir gesti í sama rými. Tvö baðherbergi eru í húsinu.
Í fjósinu er 2 x þriggja og 1 xfjögra manna fjölskylduherbergi. Í fjósinu eru 2 snyrtingar.
Við bjóðum einnig uppá morgunmat og kvöldmat, ásamt léttum veitingum yfir daginn í Jóni ríka veitingastaðnum okkar.
Þá erum við einnig með veitingastaðinn og brugghúsið Jón Ríki.
View
Kötlusetur
Í hjarta gamla Víkurþorps finnið þið Brydebúð, glæsilegt timburhús frá 1895. Þar er Kötlusetur til húsa, miðstöð menningar, fræða og ferðamála í Mýrdal.
Kannið náttúru Kötlu UNESCO jarðvangs á Kötlusýningunni. Handleikið mismunandi bergtegundir, skoðið eldfjallaösku allt aftur til ársins 1860 og sjáið stuttmynd um sögur af Kötlugosum í gegn um aldirnar.
Uppgvötvið sögu strandaðra skipa á svörtum söndum Suðurlands og kynnist happaskipinu Skaftfellingi á Sjóminjasafninu Hafnleysu. Setjið ykkur í spor sjómanna í baráttu sinni við hina hafnlausu strönd.
Í upplýsingamiðstöðinni lærið þið hvernig er best að upplifa Mýrdalinn. Verslið vöru úr heimabyggð og kannið Vík með því að keppa í Fjársjóðleik Kötluseturs eða ganga hinn glænýja Menningarhring. Kort af svæðinu með öllum sínum spennandi útivistartækifærum fást hér!
View
Byggðasafnið í Skógum
Skógasafn er eitt elsta byggðasafn landsins en safnið var fyrst opnað almenningi árið 1949. Safnkosturinn samanstendur núna af meira en 18 þúsund munum að mestu frá Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Safnið er sérstaklega þekkt fyrir Þórð Tómasson, sem var safnvörður til fjölda ára og bar ábyrgð á mestri söfnuninni. Skógasafn fagnaði 70 ára afmæli árið 2019 og í tilefni þess var sett upp ný sýning um sögu safnsins.
Skógasafn skiptist í raun í þrjú söfn: byggðasafn, húsasafn og samgöngusafn. Byggðasafnið er elsti hlutinn og sýningarhúsnæðið er á þremur hæðum. Þar má finna sjósóknardeild, landbúnaðardeild, náttúrugripadeild, vefnað, forn handrit og bækur, þar á meðal eintak af Guðbrandsbiblíu frá 1584, ásamt munum frá Víkingaöld.
Í húsasafninu má þar finna góða fulltrúa fyrir húsagerð fyrr á öldum. Á neðri hluta sýningarsvæðisins setur torfbærinn mikinn svip á sýningarsvæðið. Þar eru saman komin fjós, skemma, baðstofa, hlóðaeldhús, búr og stofa. Á efri hluta sýningarsvæðisins er að finna skólabyggingu sem er dæmigerð fyrir sveitaskóla í upphafi 20. aldar. Einnig er þar kirkja og fjósbaðstofa ásamt skemmu. Efst er elsta íbúðarhús úr timbri á safnsvæðinu, byggt í Holti á Síðu 1878.
Í Samgöngusafninu er rakin saga samgangna og tækniþróunar á Íslandi á 19. og 20. öld. Þar má meðal annars kynnast þróun samgangna frá hestum til bíla, sögu símans á Íslandi, upphaf rafmagnsnotkunar ásamt póstsamgöngum fyrr á tímum. Þar er einnig til sýnis bílar frá upphafi bílaaldar, vegminjar frá Vegagerðinni, fjarskiptasafn Sigurðar Harðarsonar og sýning Landsbjargar um björgunarsveitirnar í landinu ásamt mörgu öðru.
Samstarfsaðilar eru: Vegagerð ríkisins, Íslandspóstur, Síminn, Míla, Rarik, Landsbjörg og Þjóðminjasafnið. Í Samgöngusafninu er einnig að finna minjagripaverslun og kaffiteríu.
Þið finnið okkur á Facebook hér.Þið finnið okkur á Instagram hér
View
Listasafn Árnesinga
Gæðastundir á gefandi stað! Litríkt merkið endurspeglar fjölbreytta starfsemi safnsins. Í fjórum rúmgóðum sýningarsölum er settar upp vandaðar sýningar, innlendar og erlendar, sem endurspegla menningararfleifð okkar og mótun hennar í dag. Hverri sýningu er fylgt úr hlaði með sýningarskrá, upplýsingum og fræðslu- og afþreyingardagskrá.
Í safninu má einnig finna notalegt kaffihús og safnbúð með vörum úr heimabyggð og skemmtilegt afþreyingarefni tengt sýningum safnsins hverju sinni. Það er frítt inn og næg bílastæði.
Safnið er í eigu sveitarfélaganna átta í Árnessýslu og er viðurkennt af Safnaráði Íslands.
Listasafn Árnesinga á Facebook Opnunartími: maí - ágúst – alla daga: 12:00-17:00september - apríl – alla daga nema mánudaga 12:00-17:00
View
Keldur á Rangárvöllum
Torfbærinn á Keldum á Rangárvöllum telst vera elsti torfbær á Íslandi og sá eini sinnar tegundar sem varðveist hefur á Suðurlandi. Auk bæjarhúsa og kirkju eru þar skemmur, smiðja,myllukofi, fjós, hesthús, fjárrétt, jarðgöng o.fl.
Bærinn á Keldum kemur við sögu í nokkrum af þekktustu bókum Íslendinga, m.a. Brennu-Njáls sögu, Sturlunga sögu og Þorláks sögu en fyrsti ábúandi Keldna var landnámsmaðurinn IngjaldurHöskuldsson sem kemur við sögu í Njálu.
Þar var jafnframt eitt af höfuðbólum Oddaverja. Síðasti ábúandinn í gamla bænum var Skúli Guðmundsson, sem bjó þar til dauðadags 1946. Allar götur síðan hefur bærinn verið hluti afhúsasafni Þjóðminjasafns Íslands.
Keldur draga nafn sitt af uppsprettulindum sem koma víða fram undan túninu. Bæjar- og útihúsin eru einstakar menjar um lífið fyrr á öldum.
Kjarni húsanna er frá 19. öld en í þeim má finna eldra timbur sem skorið hefur verið í til skrauts. Á einum stað í skálanum hefur ártalið 1641 verið rist í syllu. Í mörgum bæjarhúsanna er timburgrindin jafnframt með fornu smíðalagi, svonefndu stafverki. Þá er í bæjarhúsunum að finna búshluti úr eigu fyrri ábúenda á Keldum. Úr skálanum liggja einnig jarðgöng niður að læk og hafa þau líklega verið grafin sem undankomuleið á ófriðartímum á 11.-13. öld.
Mikil er saga Keldna og er staðurinn og fornbýlið dýrmætur hluti af þjóðararfi Íslendinga. Náttúran hefur sýnt bæjarstæðinu mildi þótt oft hafi ekki miklu mátt muna að Keldur hyrfu úr tölu byggðra býla, og eftir stæði húsalaus rúst horfin í sand.
Opið er frá klukkan 10-17 alla daga frá 1. júní til 31. ágúst.Hægt er að kaupa miða hér.
View
Eldheimar
ELDHEIMAR er gosminjasýning. Sýningin miðlar fróðleik um eldgosið í Vestmannaeyjum árið 1973, sem án efa telst til stærstu náttúruhamfara Íslandssögunnar. Skyggnst er inn í mannlífið og umhverfið í Vestmannaeyjum fyrir gos og hvernig náttúruhamfarirnar 1973 gripu inn í samfélagið og líf fólksins. Nær allir íbúar Heimaeyjar urðu að yfirgefa heimili sín í skyndi og flýja eyjuna. Margir sáu húsin sín, sem og megnið af eigum sínum aldrei aftur.
Gosið hófst aðfararnótt 23. janúar 1973 á Heimaey, einu byggðu eyjunni í Vestmannaeyjaklasanum. Það stóð yfir í rúmlega 5 mánuði. Hraun og aska eyðilögðu þriðjung byggðarinnar í Eyjum, eða tæplega 400 hús og byggingar. Meðan gosið stóð yfir var mikil óvissa um það hvort nokkurn tímann yrði aftur mannabyggð á eyjunni.
View
Sagnheimar - byggðasafn
Sagnheimar - byggðasafnSagnheimar eru nýtt safn sem byggir á gömlum merg byggðasafnsins. Margmiðlun er nýtt í viðbót við safnmuni til að segja einstaka sögu Vestmannaeyja, má þar nefna:
Heimaeyjargosið 1973 Aðfararnótt 23. janúar hófst eldgos í Heimaey. Þá um nóttina voru nær allir íbúarnir, um 5.300 manns, fluttir til lands. Af um 1345 húsum fór um þriðjungur undir ösku og annar þriðjungur skemmdist. Á sýningunni getur að líta fjölda ljósmynda auk þess sem unnt er að hlusta á viðtöl.
Tyrkjaránið 1627 16. júlí 1627 læddust þrjú skip upp að austurströnd Heimaeyjar og á land stigu 300 sjóræningjar. Í þrjá daga æddu þeir um eyjuna með hrópum og köllum, hertóku fólk og drápu miskunnarlaust. Af um 500 íbúum höfðu sjóræningjarnir með sér 242 fanga til skips og seldu á þrælamarkaði í Alsír. Saga Tyrkjaránsins er sögð í formi teiknimynda.
Hættulegasta starf í heimi? Sjómennskan og fiskvinnsla skipa mikilvægasta sessinn í lífi Eyjamanna. Fjallað er um þróun fiskveiða, sjómannslífið, hættur og hetjudáðir, björgunarstörf, vinnslu í landi og verbúðarlíf í máli og myndum í viðbót við gamla muni. Í gamalli talstöð má heyra bæjarbúa segja sögu sjóslysa.
Opnunartími
1. maí - 30. september: alla daga frá 10:00-17:00
1. október - 30. apríl: Laugardaga 13:00-16:00, aðra daga lokað (opið eftir samkomulagi)
View
Aðrir (17)
Adventure Hótel Hof | Austurhús | 785 Öræfi | 478-2260 |
Íslenski bærinn | Asutur-Meðalholt | 801 Selfoss | 694-8108 |
Sólheimasetur | Sólheimar | 801 Selfoss | 422-6000 |
Þjóðveldisbærinn á Stöng | Þjórsárdalur | 801 Selfoss | 847-8723 |
Tré og List | Forsæti 5 | 803 Selfoss | 894-4835 |
Skálholtsstaður | Biskupstungnahreppur | 806 Selfoss | 486-8870 |
Hveragarðurinn | Hveramörk 13 | 810 Hveragerði | 483-5062 |
Skjálftinn 2008 | Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði | 483 4601 |
Strandarkirkja | Selvogur | 815 Þorlákshöfn | 892-7954 |
Ljósbrá - Steinasafn | Fákasel, Ingólfshvoli í Ölfusi | 816 Ölfus | 847-3460 |
Álfa-, trölla- og norðurljósasafnið | Hafnargata 9 | 825 Stokkseyri | 895-0020 |
Draugasetrið | Hafnargata 9 | 825 Stokkseyri | 895-0020 |
Samansafnið | Sólheimar | 846 Flúðir | 865-8761 |
Hótel Leirubakki | Landsveit | 851 Hella | 487-8700 |
Eldstó Art Café Restaurant | Austurvegur 2 | 860 Hvolsvöllur | 482-1011 |
Valhalla Restaurant | Hlíðarvegur 14 | 860 Hvolsvöllur | 6989007 |
Safnahús Vestmannaeyja | Ráðhúsatröð | 900 Vestmannaeyjar | 488-2040 |