Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fjaran austan við byggðina í Þorlákshöfn er í daglegu tali nefnd Skötubót.  Skötubótin er skemmtilegur staður fyrir útivist, ungir sem aldnir njóta þess að ganga og leika sér í þessari fallegu svörtu sandfjöru sem nær frá Þorlákshöfn að ósum Ölfusár. Margir knapar njóta þess að ríða í flæðarmálinu og einnig má sjá brimbrettakappa spreyta sig á öldunum. 

Í Þorlákshöfn er einn af bestu brimbrettastöðum á Íslandi þar sem brimbrettakappar alls staðar úr heiminum koma til að prófa öldurnar. Fyrir byrjendur eru öldurnar í fjörunni tilvaldar en fyrir þá sem lengra eru komnir eru öldurnar við útsýnisskífuna hjá Hafnarnesvita meira krefjandi.