Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Varasamar aðstæður við Sólheimajökul

Veðurstofa Íslands varar við hættulegum aðstæðum við sporð Sólheimajökuls eftir miklar breytingar á svæðinu undanfarna daga og vikur. Lítið jökullón hefur myndast austan við jökulsporðinn og íshaft sem tengir ströndina við jökulinn hefur þynnst verulega og er orðið óstöðugt.
Sólheimajökull og jökullónið.
Mynd: Þórir N Kjartansson
Sólheimajökull og jökullónið.
Mynd: Þórir N Kjartansson

Hætta er á að ísinn gefi sig eða að fólk falli í köld og djúp jökullón sitt hvoru megin við haftið. Vegna þessara aðstæðna hafa ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu fellt niður ferðir í forvarnarskyni og eru að skoða öruggari leiðir.

Jafnframt er bent á grjóthrunshættu úr Jökulhaus, fjallinu ofan við aðkomuleiðina að suðaustanverðum jöklinum. Ferðafólk er varað við ferðum á svæðið þar sem sýna þarf sérstaka aðgát og forðast óstöðugan jökulís. Einnig skal lágmarka viðveru undir bröttum hlíðum. 

Veðurstofan minnir á að hop jökla vegna hlýnandi loftslags breyti stöðugt aðstæðum við jökulsporða og gerir öryggisvitund ferðafólks mikilvægari en nokkru sinni fyrr. 

Nánar er hægt að lesa um málið  á vef Veðurstofunnar: Varasamar aðstæður við sporð Sólheimajökuls | Fréttir | Veðurstofa Íslands