Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 2026 haldinn á Hellu
Áherslur á stafræna þróun og markaðsstarf
Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands, fór yfir starfsemi ársins 2025 og helstu áherslur næstu misserin. Þar kom meðal annars fram að áfram er lögð mikil áhersla á þróun og eflingu heimasíðunnar www.south.is, með sérstöku tilliti til aukinnar notkunar gervigreindar og áframhaldandi þróunar á spjallmenni vefsins.
Einnig var fjallað um aukna viðveru á samfélagsmiðlum, þar sem markaðsstofan hefur meðal annars haslað sér völl á TikTok til að ná til yngri markhópa. Þá var farið yfir stærri kynningarverkefni með þátttöku erlendra blaðamanna og áhrifavalda, en Suðurland hefur fengið verulega jákvæða umfjöllun í alþjóðlegum miðlum á síðasta ári. Er það ekki síst Eldfjallaleiðin sem hefur vakið athygli erlendra fjölmiðla.
Framundan eru spennandi samstarfsverkefni, meðal annars stórt markaðsverkefni í samstarfi við Icelandair og verkefni með Inspired by Iceland þar sem lögð verður áhersla á framleiðslu og miðlun efnis frá landshlutanum.
Traust rekstrarstaða
Rekstrarniðurstaða ársins 2025 var jákvæð og skilaði starfsemin hagnaði upp á um 800 þúsund krónur eftir skatta. Kom fram að lagt er upp með að nýta vel fjármagn hvers árs, en að jafnframt sé mikilvægt að viðhalda ákveðnu svigrúmi til að bregðast við óvæntum aðstæðum.
Ný stjórn skipuð
Engin mótframboð bárust til stjórnar og var því ekki gengið til kosninga að þessu sinni. Nokkrar breytingar hurðu þó á skipan stjórnar, en Ólöf Víðfjörð Hreiðarsdóttir tók við af Anítu Jónsdóttur fyrir hönd Visit South Iceland. Var fráfarandi stjórnarmanni þakkað kærlega fyrir sitt framlag og gott samstarf.
Nýja stjórn skipa:
Ólöf Víðfjörð Hreiðarsdóttir - Visit South Iceland ehf
Ágúst Elvarsson – Ferðamálafélag Austur Skaftafellssýslu
Anton Kári Halldórsson – Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Brynhildur Jónsdóttir - Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Jelena Ohm - Ferðamálasamtök Suðurlands
Sveinn Hreiðar Jensson - Ferðamálasamtök Suðurlands
Áfangastaðaáætlun Suðurlands
Að loknum aðalfundi fjallaði Vala Hauksdóttir verkefnastjóri MSS um áherslur Suðurlands í ferðaþjónustu og kynnti nýja útgáfu Áfangastaðaáætlunar Suðurlands sem nú hefur verið sett fram sem lifandi vefsvæði. Með þeirri breytingu hefur aðgengi að gögnum og uppfærslum orðið mun einfaldari og gagnlegri fyrir notendur. Áætlunin veitir heildstæða sýn á þróun og stýringu áfangastaðarins með áherslu á sjálfbærni, samvinnu og langtímahugsun í ferðaþjónustu á Suðurlandi.
Söguslóðir Suðurlands
Heiðdís Einarsdóttir kynnti áform um vinnustofur vegna söguslóðaverkefnis sem SASS og MSS fengu styrk til að vinna að. Miðar verkefnið að því að draga fram og miðla menningararfi og sögu Suðurlands á aðgengilegan og lifandi hátt. Markmiðið er að efla áhuga gesta á menningu og sögu, dreifa álagi betur um landshlutann og styrkja upplifun ferðamanna með fjölbreyttari framboði.
Viðurkenningar
Í lok dagskrár voru veittar tvær viðurkenningar fyrir framúrskarandi framlag til ferðaþjónustu á Suðurlandi.
Sproti ársins 2026 var veittur fyrirtækinu Arctic Trailblazers fyrir metnaðarfulla og nýstárlega uppbyggingu í ferðaþjónustu.
Viðurkenning fyrir framlag til ferðaþjónustu á Suðurlandi 2026 hlaut Kristín Jóhannsdóttir hjá Eldheimum fyrir mikilvægt og óeigingjarnt framlag sitt til greinarinnar.
Aðalfundargerð má nálgast hér