Almyrkvinn 2026. Hvar finn ég upplýsingar?
Til að auðvelda undirbúning höfum við tekið saman helstu upplýsingaveitur fyrir ferðaþjónustuaðila, fyrirtæki og aðra sem taka á móti gestum á Suðurlandi. Búast má við því að mikill fjöldi ferðamanna og íbúa á Suðurlandi muni vilja ferðast vestar til að upplifa almyrkvann. Það er þó mikilvægt að halda til haga að þó svo að almyrkvinn sé bundinn við vestari part landsins, þá verði upplifunin einnig mikilfengleg í öðrum landshlutum sem deildarmyrkvi.
Upplýsingar um almyrkvann á ensku má finna hér.
Fræðsla um almyrkvann
Á vefjum Sævars Helga má finna allar ítarlegar upplýsingar um sjálfan almyrkvann, annars vegar á ensku og hins vegar á islensku: https://eclipse2026.is/ og https://solmyrkvi2026.is/
Þar er meðal annars að finna:
- Gagnvirk kort
- Tímasetningar
- Hvar almyrkvinn sést best
- Öryggisleiðbeiningar
- Upplýsingar um sólmyrkvagleraugu
- Ráð fyrir ljósmyndun
- Fræðsluefni
Hverju má búast við á Suðurlandi
Þó að almyrkvinn verði best sýnilegur á vestanverðu landinu, geta ferðamenn á Suðurlandi enn notið atburðarins án mikillar fyrirhafnar án þess að ferðar vestar.
Á Suðurlandi má búast við mjög djúpum deildarmyrkva þar sem tunglið mun hylja allt frá 96 - 99,9% sólarinnar, eftir því hvaðan er horft.
Vestast á Suðurlandi (Þorlákshöfn - Selfoss) mun tunglið hylja um 99,7 - 99,9% af sólinni þegar myrkvinn nær hámarki.
Austast á Suðurlandi verður myrkvinn áfram mjög djúpur. Til dæmis verður um 96% hula á Höfn í Hornafirði þegar myrkvinn nær hámarki.
Smelltu hér til að sjá hversu mikið tunglið mun hylja sólina frá þinni staðsetningu.
Upplýsingar á landsvísu
Á island.is verða birtar samræmdar upplýsingar frá stjórnvöldum um ferðalög, öryggi, umferð, viðbragðsáætlanir og mikilvægar tilkynningar.
Umferð og lokanir
Á vef Vegagerðarinnar má finna allar helstu upplýsingar um umferðarstýringar á því svæði sem almyrkvinn verður, svo sem:
- Einstefnur
- Lokanir
- Aðgengi að vinsælum svæðum
- Bílastæði
- Umferðarstýringu
Við hvetjum alla til að fylgjast vel með upplýsingum frá Vegagerðinni og hvetjum ferðaþjónustuaðila til að koma leiðbeiningum frá stjórnvöldum á framfæri við sína viðskiptavini.
Upplýsingar um veður og skýjahuluspá
Mikilvægt er að ferðamenn séu vel upplýstir um veður og hvar nálgast má upplýsingar um veðurspár og skýjahuluspá. Á síðu Veðurstofu Íslands má finna skýjahuluspá vegna almyrkvans.
Það sem gott er að undirbúa núna
Við hvetjum ferðaþjónustuaðila til að yfirfara sinn undirbúning og kynna sér sérstaklega:
- Sólmyrkvagleraugu fyrir starfsfólk og gesti
- Sólarsíur fyrir myndavélar og síma
- Umferðarstýringu og lokanir
- Bílastæði og möguleg þjónustu- eða bílastæðagjöld
- Viðburði og dagskrá á svæðinu
- Opnunartíma fyrirtækja
- Salernisaðstöðu
- Mat og veitingar
- Öryggisleiðbeiningar fyrir gesti
- Hvernig best er að upplýsa gesti um að njóta almyrkvans á öruggan hátt
Hjálpumst að
Við hvetjum alla ferðaþjónustuaðila til að fylgjast reglulega með upplýsingasíðunum og uppfæra sitt eigið efni eftir því sem nýjar upplýsingar verða birtar.
Leggið af stað tímanlega
Búast má við mikilli umferð síðdegis 12. ágúst og mikilvægt að koma þeim skilaboðum áleiðis til sinna viðskiptavina sem eiga leið um svæðið. Við mælum því með að gestir fari af stað á sína áfangastaði með mjög góðum fyrirvara og geri ráð fyrir lengri ferðatíma en venjulega, sér í lagi vestast á Suðurlandi. Samkvæmt Vegagerðinni gæti komið til frekari umferðarstýringar eða lokana ef á þarf að halda. Það er því mikilvægt að fylgjast vel með upplýsingaveitum og koma skilaboðum áfram til ferðamanna.
Helstu upplýsingasíður:
Visit South – upplýsingar um Suðurland, áfangastaði, þjónustu og umferð.
Sólmyrkvi 2026 / Eclipse 2026 – fræðsla um almyrkvann, kort, tímasetningar og öryggi.
island.is – opinberar upplýsingar stjórnvalda.
Vegagerðin / Umferðin – umferð, lokanir og aðstæður á vegum. Ath. Að vegurinn að Keili verður lokaður. Kemur ekki fram á umferdin.is.
