Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Suðurland kynnt á vinnustofum í Kanada

Í byrjun júní fórum fram þrjár vinnustofur í Kanada á vegum Íslandsstofu en þær voru haldnar í Toronto, Montreal og Vancouver. Á vinnustofunum var íslensk ferðaþjónusta kynnt þarlendum söluaðilum og ferðaskrifstofum af 17 íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum, 4 Markaðsstofum og Íslandsstofu.
Toronto, Montreal og Vancouver heimsóttar.
Toronto, Montreal og Vancouver heimsóttar.

Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands, kynnti þar áfangastaðinn Suðurland og átti fundi með a.m.k. 77 aðilum en alls sóttu um 150 söluaðilar vinnustofurnar þrjár. Hópurinn sem mætti var góð blanda af fólki sem þekkti Ísland vel og öðrum sem þekktu áfangastaðinn lítið. Þau eru með viðskiptavini sem sækjast til dæmis eftir  ævintýrum, Íslandi, Evrópu, lúxus, matartengdri upplifun, skemmtiferðaskipasiglingum, brúðkaupsferðum og fleiru. Eru að þjónusta stærri hópa, minni hópa, einstaklinga og fjölskyldur með börn og þar sem nokkrar kynslóðir eru að ferðast saman.

Áherslan var á að kynna hvað svæðið hefur fjölbreytta þjónustu og best sé að dvelja á svæðinu til að geta notið sem mest. Einnig voru ferðaleiðirnar kynntar og ýmislegt þematengt eftir áhugasviði og spurningum hvers og eins. Fulltrúar Suðurlands og Reykjaness voru saman á borði og kynntu einnig Eldfjallaleiðina (e. The Volcanic Way) en það er samstarfsverkefni þessara tveggja landshluta. Auk þess voru söluaðilar hvattir til að fylgjast með nýju „Traveltrade“ síðunni á vefnum okkar þar sem ýmsar upplýsingar eru m.a. um nýjungar á svæðinu.

Beint flug er til Íslands frá öllum þessum borgum og var mikill áhugi á Íslandi sem áfangastað, bæði í gegnum flugið en einnig margir sem voru að skipuleggja ferðir fyrir fólk sem var að fara í siglingu í kringum Ísland með skemmtiferðaskipi en vildi bæta við nokkrum dögum á Íslandi í tengslum við siglinguna.

Samkvæmt upplýsingum um kanadíska markaðinn frá Íslandsstofu sem hópurinn fékk fyrir vinnustofurnar er búist við að eftirspurn eftir ferðalögum haldist áfram sterk í Kanada fyrir árið 2026, þar sem 9 af hverjum 10 hyggjast ferðast og flestir ætla að ferðast jafn mikið eða meira en áður. Á sama tíma eru þeir orðnir verðmeðvitaðri vegna lágs gengis kanadíska dollarans, hækkandi eldsneytiskostnaðar og aukinnar óvissu í heiminum, og hafa 21% þegar aflýst eða frestað ferðum vegna kostnaðar. Kanadabúar ferðast talsvert meira innanlands en áður vegna minnkandi ferðaáhuga til Bandaríkjanna og áhugi á Evrópu, Asíu og Mexíkó fer vaxandi. 25% Kanadabúa setja Evrópu efst á óskalistann yfir áfangastaði.

Fyrir íslenska og sunnlenska ferðaþjónustu felast því tækifæri í því að áfangastaðurinn er öruggur, með einstaka náttúru, ríka sögu og öflug ferðaþjónustufyrirtæki sem leggja upp úr gæðum og frábærri upplifun gesta.

Mynd af Ragnhildi við sýningarborðið í Montreal