Viðurkenningar fyrir Sprota ársins og Framlag ársins 2026
Í ár féll viðurkenningin fyrir Sprota ársins í skaut fyrirtækisins Arctic Trailblazers sem hefur á skömmum tíma vakið athygli fyrir spennandi og vandaðar ævintýraferðir á Suðurlandi. Fyrirtækið hefur þróað einstaka upplifun þar sem ferðalangar fá að njóta náttúrunnar á nýjan og kraftmikinn hátt, meðal annars með snjóhjóla- og enduro ferðum.
Það sem einkennir Arctic Trailblazers er metnaðurinn og ástríðan sem liggur að baki vörunni þeirra, og má það glöggt lesa þegar rennt er yfir ummæli þeirra sem hafa prófað. Kemur þar meðal annars fram að gæði, öryggi og persónuleg þjónustu þeirra hafi galdrað fram einstaka upplifun gesta þeirra. Þau Eva Sæland og Óskar Sigurðsson sem eiga og reka fyrirtækið hafa því ekki aðeins aukið fjölbreytni í ferðaþjónustu á svæðinu, heldur líka styrkt ímynd Suðurlands sem áfangastaðar fyrir þá sem leita að ævintýrum og nýrri upplifun.

Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan árangur og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu og vexti.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið og þjónustuna sem þau veita má finna með því að smella hér
Framlag til ferðaþjónustu 2026
Viðurkenninguna fyrir framlag til ferðaþjónustu fyrir árið 2026 hlýtur Kristín Jóhannsdóttir, safnstjóri Eldheima í Vestmannaeyjum.
Kristín er fædd í Reykjavík en uppalin í Vestmannaeyjum og hefur alla tíð haft sterkar rætur í samfélaginu þar.
Starfsferill hennar hefur verið bæði fjölbreyttur og alþjóðlegur, meðal annars sem fréttaritari RÚV í Berlín og markaðs- og upplýsingastjóri Icelandair í Frankfurt. Þá hefur hún starfað við leiðsögn, markaðsmál og skipulagningu fjölbreyttra verkefna þar sem Ísland og Vestmannaeyjar hafa verið í forgrunni.
Kristín var ráðin til Vestmannaeyjabæjar árið 2004 sem ferða-, menningar- og markaðsfulltrúi og nýtti þar öflugt tengslanet sitt til að kynna Eyjarnar á erlendum vettvangi. Hún átti stóran þátt í að móta þá sýn að Vestmannaeyjar yrðu kynntar sem „Pompei Norðursins“, sem síðar varð kveikjan að uppbyggingu Eldheima.

Frá opnun Eldheima árið 2014 hefur Kristín gegnt lykilhlutverki sem safnstjóri og byggt upp safnið sem einn af mikilvægustu áfangastöðum landsins. Undir hennar stjórn hefur tekist að miðla sögu gossins 1973 á lifandi og áhrifaríkan hátt sem dregur að sér þúsundir gesta á ári hverju. Samhliða því hefur hún staðið fyrir fjölbreyttum menningarviðburðum og lagt sitt af mörkum til að efla menningarlíf og upplifun gesta í Eyjum. Kristín starfaði einnig um tíma í faghóp og stjórn Markaðsstofu Suðurlands.
Með alla sína reynslu hefur Kristín lagt mikið til ferðaþjónustu á Suðurlandi, þar sem fagmennska, metnaður og skýr sýn hafa einkennt hennar störf.
Færum við henni okkar bestu þakkir fyrir hennar framlag til ferðaþjónustunnar á Suðurlandi og óskum henni áframhaldandi velfarnaðar í störfum sínum fyrir ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingar um Eldheima má finna með því að smella hér.