Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Rúmlega 178 milljónir til innviða á ferðamannastöðum á Suðurlandi

Fimm verkefni á Suðurlandi hlutu samtals 178.567.403 krónur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Úthlutunin er hluti af nær 490 milljóna króna styrkveitingu til 18 verkefna um land allt þar sem sérstök áhersla var lögð á öryggi ferðamanna á fjölsóttum ferðamannastöðum.
Ferðamaður stendur á toppi Eldfells. Ljósmyndari: Þráinn Kolbeinsson.
Ferðamaður stendur á toppi Eldfells. Ljósmyndari: Þráinn Kolbeinsson.

Fimm verkefni á Suðurlandi hlutu samtals 178.567.403 krónur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Úthlutunin er hluti af nær 490 milljóna króna styrkveitingu til 18 verkefna um land allt þar sem sérstök áhersla var lögð á öryggi ferðamanna á fjölsóttum ferðamannastöðum.

Hæsti styrkurinn rennur til Vestmannaeyja

Hæsti styrkurinn á Suðurlandi, og jafnframt hæsti styrkur úthlutunarinnar í ár, rann til Vestmannaeyja vegna uppbyggingar á Eldfelli. Verkefnið, Tröppur/göngustígur á Eldfell í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar, Sjónarhorn flakkarans (The Wanderer’s Perspective), fékk 107.478.803 krónur. Styrkurinn verður nýttur í stíga, tröppur, útsýnispalla, upplýsingaskilti og leiðakerfi um Eldfell. Markmiðið er að bæta öryggi gesta, stýra umferð um svæðið og vernda viðkvæmar jarðminjar Eldfells, um leið og eldgossins á Heimaey árið 1973 er minnst.

Reykjadalur fær andlitslyftingu

Reykjadalsskálinn slf. fékk 40.353.600 krónur til forgangsaðgerða á Reykjadalsgönguleiðinni. Þar verður meðal annars unnið að breyttri legu stígs við gilið, lokun eldri stígs, gerð vatnsrása og drena til að verja stíginn gegn vatnsrofi, frágangi yfirborðs og köntum og merkingum vegna breyttrar legu. Þá verður göngustígur og áningarstaður við hveri færður til og lagðir svokallaðir fljótandi stígar ásamt öryggismerkingum við hverasvæðið. Aðgerðirnar miða að því að vernda viðkvæm hverasvæði og bæta öryggi á einni fjölsóttustu gönguleið landsins.

Stórbætt öryggi við Sigöldugljúfur

Rangárþing ytra fékk 28 milljónir króna til uppbyggingar öryggisinnviða við Sigöldugljúfur. Þar er gert ráð fyrir varanlegu bílastæði, gönguleiðum og uppsetningu viðvörunar- og upplýsingaskilta. Sigöldugljúfur hefur notið vaxandi vinsælda meðal ferðamanna á hálendi Íslands, en aðstæður á svæðinu geta verið varasamar og verkefnið er því mikilvægt bæði út frá öryggi gesta og náttúruvernd.

Ferðafélag Íslands vinnur að öryggi göngufólks

Ferðafélag Íslands fékk tvo styrki til verkefna á Suðurlandi. Annars vegar 2,5 milljónir króna til smíði þriðju hreyfanlegu brúarinnar yfir Krossá í Þórsmörk, en slíkar brýr gegna lykilhlutverki við að tryggja öryggi fólks á svæðinu þar sem farvegur árinnar breytist stöðugt. Hins vegar fékk félagið 235 þúsund krónur til verkefnisins Laugavegur – öryggismál, náttúruvernd og sjálfbærnistefna, sem felur í sér uppsetningu leiðbeininga-, varúðar- og fræðsluskilta á einni vinsælustu gönguleið landsins.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur verið starfræktur frá árinu 2012 en í hann geta sveitarfélög, áhugafélög og einkaaðilar sótt. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða og -leiða um land allt. Styrkt verkefni verða að efla öryggi og/eða stuðla að náttúruvernd. Um samkeppnissjóð er að ræða og rík krafa er á a umsóknir séu vandaðar og vel ígrundaðar. Markaðsstofa Suðurlands óskar styrkþegum til hamingju og góðs gengis með verkefnin, stór sem smá.