Vegalokanir vegna stórtónleika á Þingvöllum 20. júní.
Fyrirséð er að verulegur fjöldi gesta muni sækja svæðið heim þennan dag til að upplifa tónlistarviðburðinn Bergmál. Gera má ráð fyrir allt að 20.000 manns yfir daginn.
Búast má við miklu álagi og umferðarþunga allan daginn á Þingvallavegi.
Bílastæðið á Haki verður opið fyrir almennri umferð til 15:00. Gönguleiðir um Almannagjá verða opnar frá útsýnispalli við Hakið niður Almannagjá að Lögbergi/Drekkingarhyl. Þaðan verður hægt að ganga til austurs að Peningagjá/Flosagjá.
Ferðaþjónustuaðilar með farþega geta ýmist látið gesti sína út á Haki og beðið eftir þeim þar eða ef vilji er til, sótt farþega við Flosagjá / Peningagjá (P4).
Frá bílastæðinu þar verður einstefna austur úr þjóðgarðinum á vegi 361 meðfram vatni.
Athugið að einungis rútuumferð er heimil á vegi 361, en rútur geta sótt gesti sína þar.
Eftirfarandi bílastæði og aðgengi verða lokuð nema fyrir tónleikagesti.
- Langistígur P3
- Kastalar P2
- Valhöll P5
Eftirfarandi gönguleiðir verða lokaðar fyrir aðra en tónleikagesti.
- Langistígur P3
- Almannagjá norður frá Lögbergi að Köstulum og í átt að Öxarárfossi.
Tónleikagestum verður vísað að þremur bílastæðum sem eru fyrirframpöntuð, við Brúsastaði, Tæpastíg og við Leirar skammt frá þjónustumiðstöð.
Tónlistarhátíðin hefst klukkan 11:00 árdegis við Valhöll en færist svo einnig að Dynbergi, Efri Völlum fyrir neðan Öxarárfoss kl. 14:00. Búast má við að umferð í og við þinghelgina muni þyngjast þegar líður á daginn með mögulega tilheyrandi töfum. PDF - útgáfu af korti yfir veglokanir má finna á vefsíðu þjóðgarðsins.