Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Almyrkvi - Þriðji kynningarfundur 10.júní á Teams

Þriðji fundur vegna almyrkvans verður haldinn þann 10.júní klukkan 13:00-14:15 á Teams. Sævar Helgi Bragason mun kynna almyrkvann og í kjölfarið verður upplýsingavefur stjórnvalda kynntur. Runólfur Þórhallsson yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra stýrir fundi.
Strandarkirkja - Páll Jökull Pétursson. Almyrkvinn mun sjást frá Strandarkirkju ef vel viðrar.
Strandarkirkja - Páll Jökull Pétursson. Almyrkvinn mun sjást frá Strandarkirkju ef vel viðrar.

Almyrkvinn 12.ágúst næstkomandi mun vekja heimsathygli, og von er á miklum fjölda ferðamanna til landsins í þeim tilgangi að sjá hann. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur þegar haldið tvo fundi til að undirbúa ferðaþjónustuaðila og tengda aðila fyrir viðburðinn svo allt gangi vel þegar þar að kemur. Þriðji fundurinn verður haldinn þann 10.júní klukkan 13:00-14:15 á Teams. Sævar Helgi Bragason mun kynna almyrkvann og í kjölfarið verður upplýsingavefur stjórnvalda kynntur. Runólfur Þórhallsson yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra stýrir fundi.

Hver eiga erindi á fundinn?

Fólk í ferðaþjónustu er sérstaklega hvatt til að fylgjast með fundinum, sem og starfsfólk sveitarfélaga, til dæmis verkstjórar áhaldahúsa, hafnastjórar, markaðs- og kynningarfulltrúar og ferðamálafulltrúar.

Dagskrá fundar:

  • Runólfur opnar fundinn

  • Sævar Helgi Bragason – Stjörnu Sævar með kynningu

  • Upplýsingavefur stjórnvalda kynntur

Ef þú hefur spurningar

Fundurinn verður tekinn upp en sökum fjölda fundargesta verður ekki boðið upp á spurningar á honum. Þeim sem hafa spurningar tengdar ferðaþjónustu er bent á eftirfarandi tengiliði:

 

Meira um Almyrkvann

Miðvikudaginn 12. ágúst árið 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Eftir myrkvann 2026 munu 170 ár líða þar til alskuggi tunglsins nemur land á Íslandi aftur. 

Myrkvinn hefst síðdegis og nær hámarki um klukkan 17:30, en þá hylur tunglið sólina að mestu. Á Suðurlandi verður myrkvinn mjög sýnilegur, en bestu skilyrðin eru þó á Vesturlandi og á Reykjanesskaga þar sem alger myrkvi (100% hyljun) mun sjást. Hér á Suðurlandi má vænta mjög djúps hringmyrkva (yfir 95% hyljun), sem þýðir dökkbláan himin og sérstaka ljósabreytingu. Allt landið upplifir þó sjáanlega hluta myrkvans.

Almyrkvar á sólu laða ekki aðeins að sér mikinn fjölda ferðamanna, heldur vekja þeir mikla athygli heimafólks. Búast má við því að mörg hundruð þúsund augu horfi samtímis til himins þann 12. ágúst 2026 .

Til að undirbúa íbúa og gesti sem best hefur verið opnuð upplýsingagáttin solmyrkvi2026.is þar sem finna má áreiðanlegar upplýsingar um tímasetningar, öryggisráð (aldrei horfa beint á sólina án sérstakra gleraugna), staðsetningar og fleira.

 

Hlekkur á fundinn

Fundurinn fer fram 10.júní klukkan 13:00-14:15. Smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að taka þátt:

Microsoft Teams fundur

Join: https://teams.microsoft.com/meet/32904437017431?p=qQcRFVa5uqBDOYkfL2

Meeting ID: 329 044 370 174 31

Passcode: Va25qU2d