Kínverskir fjölmiðlar og áhrifavaldar kynntust Suðurlandi
Fyrsta áætlunarflug Air China frá Peking kom til Keflavíkur 26. október 2026. Flogið er þrisvar í viku með viðkomu í Kaupmannahöfn og er þetta fyrsta reglubundna flugtenging Íslands við meginland Kína. Tengingin bætir aðgengi frá Kína og öðrum Asíumörkuðum og skapar ný tækifæri fyrir ferðaþjónustu um allt land.