Baðlónin á Suðurlandi: böð, matur og umhverfi
Fjölgun baðlóna á Suðurlandi hefur verið fremur hröð undanfarin ár. Á rúmum þremur árum hafa þrjú ný baðlón opnað á Suðurlandi: Hálendisböðin í Kerlingarfjöllum, Laugarás Lagoon í Laugarási og nú síðast Reykjaböð við Hveragerði. Á sama tíma hefur Laugarvatn Fontana verið endurbyggt og stækkað. Í dag eru fimm baðlón starfandi í landshlutanum, frá Hveragerði og alla leið upp á hálendið, og fleiri eru í undirbúningi, meðal annars í Hveradölum í Ölfusi þar sem stefnt hefur verið að opnun árið 2028.



Baðið sjálft er þó aðeins hluti af heimsókninni. Lónin eru byggð inn í umhverfi sitt og tengjast því sem er í kring: Reykjaböð standa þar sem gengið er upp í Reykjadal, Laugarás Lagoon á bakka Hvítár, Fontana við Laugarvatn og Hálendisböðin í fjallasal Kerlingarfjalla, þar sem gönguleiðir liggja um jarðhitasvæði Hveradala. Öll lónin reka veitingastað með áherslu á hráefni úr héraði og víða er fleira í boði. Í Reykjaböðum er hægt að bóka nudd og aðrar meðferðir, á Fontana fá gestir að smakka hverabakað rúgbrauð og á Highland Base er hægt að gista og fara í leiðsagðar göngur. Heimsókn í baðlón verður þannig oft hluti af lengri degi á svæðinu, og flest lónin eru opin allt árið.
Baðlónin
Reykjaböð, Hveragerði
Reykjaböð opnuðu í september 2026 við mynni Reykjadals í Hveragerði, þar sem gönguleiðin upp að heita læknum hefst. Aðallónið er tæpir 900 fermetrar og vatnið um 38 gráður. Umhverfis lónið eru gufubað, kaldir pottar við tvö hitastig og Kneipp-laug með sjávarsteinum þar sem gengið er á milli heits og kalds vatns. Í baðhúsinu er boðið upp á nudd og aðrar meðferðir og á staðnum er veitingastaður, bar ofan í lóninu og svið fyrir viðburði á borð við tónleika og flotstundir. Reykjaböð henta vel fyrir þá sem vilja sameina göngu í Reykjadal og slökun í sömu ferðinni.
Laugarás Lagoon, Laugarási
Laugarás Lagoon opnaði 15. október 2025 á bakka Hvítár í Laugarási, skammt frá Skálholti á Gullna hringnum. Lónið er um þúsund fermetrar á tveimur hæðum og gestir ganga á milli hæða í gegnum foss. Byggingin er lágreist með úthagagrasi á þakinu og á útisvæðinu eru tvær saunur, kaldur pottur og heitur pottur í skógarrjóðri. Veitingastaðurinn Ylja, undir stjórn Gísla Matthíasar Auðunssonar, leggur áherslu á hráefni frá bændum og smáframleiðendum í nágrenninu.
Laugarvatn Fontana, Laugarvatni
Á Laugarvatni hafa gufuböð staðið yfir hver frá því um 1930 og Fontana opnaði þar sem heilsulind árið 2011. Eftir umfangsmiklar endurbætur opnaði Fontana á ný árið 2026 með nýrri saunu með stórum útsýnisglugga, endurnýjuðu gufubaði beint yfir hvernum og nýjum laugum sem ná út í Laugarvatn. Gestir geta kælt sig í vatninu á milli gufuferða og smakkað rúgbrauð sem bakað er í heitum sandinum við lónið.
Hálendisböðin, Highland Base Kerlingarfjöllum
Hálendisböðin eru í Ásgarði í Kerlingarfjöllum, um 700 metra yfir sjávarmáli. Þau eru hluti af Highland Base, þar sem er hótel, skálar, tjaldsvæði og veitingastaður á gamla skíðasvæðinu í Kerlingarfjöllum. Í böðunum eru heitar laugar, kaldur pottur, sauna og bar með útsýni yfir fjallgarðinn. Böðin eru kærkominn endapunktur eftir göngu um litrík jarðhitasvæði Hveradala. Á sumrin geta dagsgestir keypt aðgang, en Highland Base er opið allt árið og á veturna er komið þangað í skipulögðum ferðum.