Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Söguslóðir Suðurlands - Vinnustofur um mótun ferðaleiðar.

Markaðsstofa Suðurlands vinnur nú að þróun Söguslóða Suðurlands, verkefnis sem tengir saman sögu, menningu, náttúru og mannlíf svæðisins í heildstæða ferðaleið. Verkefnið hlaut styrk úr Byggðaáætlun í gegnum SASS.

Ferðaleið er meira en röð áfangastaða. Hún er frásögn sem tengir saman staði, fólk og fortíð. Með Söguleiðum Suðurlands viljum við hvetja gesti til að dvelja lengur, dreifa heimsóknum víðar um svæðið og auka sýnileika staða með ríka sögu og menningarlegt gildi.

Vinnustofur um allt Suðurland
Á næstu vikum verða haldnar vinnustofur víðs vegar um landshlutann. Þangað bjóðum við heimafólki, sveitarfélögum, söfnum, félagasamtökum, ferðaþjónustuaðilum og öðrum sem þekkja sitt svæði vel. Saman leitum við svara við einni spurningu:
Hvaða sögur búa á þínu svæði?

Á vinnustofunum kortleggjum við sögustaði, þjóðsögur, merkt fólk og atburði, ræðum möguleg þemu og skoðum hvernig hægt er að byggja upp áhugaverðar og sjálfbærar söguleiðir.

Hvað verður til?
Lokaafurð verkefnisins verður stafrænt kort, þemabundnar ferðaleiðir og aðgengilegur efnisbanki sem styður áframhaldandi uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu á Suðurlandi.

Staðir og dagsetningar

Til stendur að vinnustofur verði haldnar á eftirtöldum stöðum á næstu misserum:

  • Hella 
  • Eyrarbakki 
  • Kirkjubæjarklaustur 
  • Laugarvatn
  • Vík 
  • Vestmannaeyjar 
  • Höfn
  • Öræfi 

Fyrsta vinnustofan mun fara fram á Stracta Hótel á Hellu þann 11. nóvember kl 11:00 - 13:00. Léttar veitingar verða í boði. 

Skrá mig í vinnustofu