Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu
Ef þú ættir að sýna gesti bestu sögu Suðurlands, hvert myndir þú fara?
Komdu á vinnustofu um þróun Söguleiða Suðurlands og taktu þátt í að móta nýja ferðaleið sem byggir á sögu, menningu og sérstöðu svæðisins.Vinnustofur verða haldnar vítt og breitt um landshlutann á næstu misserum og mun fyrsta vinnustofan fara fram á Stracta Hótel á Hellu þann 11. nóvember kl 11:00-13:00. Aðrar vinnustofur verða nánar auglýstar síðar.
Staðsetning: Stracta Hótel á HelluDagsetning: 11. Nóvember kl 11:00 - 13:00Söguslóðir Suðurlands er verkefni sem hefur það að markmiði að tengja saman sögu, menningu, náttúru og mannlíf svæðisins í heildstæðar ferðaleiðir. Verkefnið hlaut styrk úr Byggðaáætlun í samstarfi SASS Markaðsstofu Suðurlands. Markmið þess er að skapa ný tækifæri fyrir menningar- og sögutengda ferðaþjónustu á Suðurlandi.
Tilgangurinn er að hvetja ferðamenn til að dvelja lengur á svæðinu, dreifa gestakomum betur milli áfangastaða og auka sýnileika þeirra staða sem hafa ríka sögu og menningarlegt gildi en hafa fram til þessa fengið minni athygli. Verkefnið byggir á þeirri hugmynd að ferðaleið sé meira en röð áfangastaða; hún sé frásögn sem tengir saman staði, fólk og fortíð.