Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Styrkir til uppbyggingar – umsóknarfrestir í október

Nú er tíminn til að sækja um styrki. Tveir sjóðir sem gegna lykilhlutverki fyrir ferðaþjónustu á Suðurlandi hafa umsóknarfrest í október:
Eldfell - Þráinn Kolbeinsson
Eldfell - Þráinn Kolbeinsson

Sveitarfélög, einstaklingar, fyrirtæki og félög athugið - nú er tíminn til að sækja um styrki. Tveir sjóðir sem gegna lykilhlutverki fyrir ferðaþjónustu á Suðurlandi hafa umsóknarfrest í október:

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða sem sveitarfélög og einkaaðilar geta sótt um styrki í til að efla öryggi og vernda náttúru á ferðamannastöðum og -leiðum. Á árunum 2018-2026 hefur yfir 1,2 milljörðum króna verið veitt úr sjóðnum til hönnunar og framkvæmda við ferðamannastaði á Suðurlandi.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands sem einstaklingar, fyrirtæki og félög geta sótt í til að efla atvinnulíf, nýsköpun og/eða menningu á Suðurlandi. Athugið að þessi sjóður einskorðast ekki við ferðaþjónustu en hann hefur gagnast fjölmörgum sunnlenskum ferðaþjónustuaðilum í gegn um árin, til dæmis við vöruþróun, markaðssetningu, áætlanagerð og fleira.

Í hvaða sjóð á ég að sækja?

Ef verkefnið snýr t.d. að atvinnuuppbyggingu, nýsköpun, vöruþróun, samfélagsverkefni eða viðburði, þá er Uppbyggingarsjóður Suðurlands líklega málið fyrir þig. Ef þú hyggst byggja upp innviði á ferðamannastað í náttúru Íslands þar sem aðal markmiðið er að efla öryggi eða vernda náttúru, þá skaltu skoða Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

Smelltu hér til að skoða síðustu úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands.

Kortið hér að neðan sýnir áfangastaði sem hafa verið byggðir upp með stuðningi úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða á árunum 2018-2026, merkt með bláum punktum. Rauðir punktar eru áfangastaðir sem eru á núgildandi Landáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

Vönduð umsókn kemur þér lengra

Þetta eru samkeppnissjóðir og því afar mikilvægt að umsóknir séu vel ígrundaðar og vandlega rökstuddar. Það er að mörgu að huga þegar sótt er um styrki og þess vegna hvetjum við umsækjendur til að slá á þráðinn, símleiðis eða í tölvupósti. Það kostar ekkert að fá ráðgjöf hjá starfsfólki Markaðsstofu Suðurlands eða hjá þínum Byggðaþróunarfulltrúa.

Kynntu þér málið

Uppbyggingarsjóður Suðurlands

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða

Heyrðu í okkur

Vala Hauksdóttir: vala@south.is

Veitir ráðgjöf um uppbyggingu áfangastaða, áfangastaðaáætlun og Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

Hrafnhildur Árnadóttir: hrafnhildur@south.is

Veitir ráðgjöf um markaðs- og kynningarmál, nýsköpun og frumkvöðlastarf og Uppbyggingarsjóð Suðurlands.

Byggðaþróunarfulltrúar Suðurlands: sass.is/radgjof

Veita ráðgjöf um Uppbyggingarsjóð Suðurlands, Nýsköpun og frumkvöðlastarf, atvinnuþróun og rekstur, og menningarmál.