Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fréttir

Opnað fyrir skráningar á Mannamót 2027

Nú hefur verið opnað fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem verða haldin í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 28. janúar 2027.

Menntamorgunn Ferðaþjónustunnar: Hvernig höldum við í gott fólk?

Menntamorgnar ferðaþjónustunnar fara nú aftur í gang með lækkandi sól en þeir eru opnir og ókeypis fræðsluviðburðir fyrir starfsfólk og stjórnendur í ferðaþjónustu í boði Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna.
Eldfell - Þráinn Kolbeinsson

Styrkir til uppbyggingar – umsóknarfrestir í október

Nú er tíminn til að sækja um styrki. Tveir sjóðir sem gegna lykilhlutverki fyrir ferðaþjónustu á Suðurlandi hafa umsóknarfrest í október:

Auglýst eftir umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2027. Umsóknarfrestur er til kl. 13 þann  27. október 2026 en umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina. 

Markaðsstofa Suðurlands tók þátt í Vestnorden í Nuuk í Grænlandi

Uppspretta Suðurlands 6.-7. nóvember 2026

Dagana 6.–7. nóvember verður Uppspretta – hátíð atvinnulífs og nýsköpunar á Suðurlandi – haldin í Horseday-höllinni í Ölfusi í fyrsta skipti.

Reykjaböð - Nýtt baðlón opnað í Reykjadal.

Ný náttúruperla hefur bæst í flóru baðstaða á Suðurlandi en Reykjaböð í Reykjadal hafa nú tekið á móti sínum fyrstu gestum. Staðurinn er hannaður í anda íslenskrar baðmenningar og fellur einstaklega vel að umhverfi sínu, með stórbrotið landslag Reykjadals og kraumandi jarðhita allt um kring.

Laugarvatn Fontana opnað eftir endurbætur

Fontana á Laugarvatni hefur opnað dyr sínar á ný eftir umfangsmiklar endurbætur. Staðurinn hefur um árabil verið einn vinsælasti áningarstaður á Suðurlandi, enda sameinar hann jarðhitalón, gufuböð og fallegt umhverfi við bakka Laugarvatns í eina heild. Með endurbótunum fá gestir nú enn betri umgjörð til að njóta þess sem Fontana hefur upp á að bjóða.

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar býður fyrirtækjum á Suðurlandi í samtal

Í október verður Hæfnisetur ferðaþjónustunnar á ferð um Suðurland og býður fyrirtækjum í ferðaþjónustu að fá heimsókn þar sem kynntar verða hagnýtar lausnir og verkfæri sem styðja við uppbyggingu mannauðs, fræðslu og starfsþróun.

Almyrkvinn 2026. Hvar finn ég upplýsingar?

Almyrkvinn er einstakur náttúruatburður sem verður sýnilegur frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga. Annars staðar á landinu verður djúpur deildarmyrkvi, þar sem skuggi tunglsins gengur að miklum hluta til fyrir sólina. Á Suðurlandi mun tunglið til að mynda hylja á milli 96-99,9% sólarinnar eftir því hvaðan er horft til himins þegar myrkvinn nær hámarki. Með góðum undirbúningi, samræmdri upplýsingagjöf og góðri samvinnu getum við skapað örugga og eftirminnilega upplifun fyrir íbúa og gesti sem vilja upplifa atburðinn.
Sólheimajökull og jökullónið.
Mynd: Þórir N Kjartansson

Varasamar aðstæður við Sólheimajökul

Veðurstofa Íslands varar við hættulegum aðstæðum við sporð Sólheimajökuls eftir miklar breytingar á svæðinu undanfarna daga og vikur. Lítið jökullón hefur myndast austan við jökulsporðinn og íshaft sem tengir ströndina við jökulinn hefur þynnst verulega og er orðið óstöðugt.
Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands á Stracta Hótel Hellu 2026.

Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 2026 haldinn á Hellu

Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands (MSS) 2026 var haldinn á Stracta Hotel Hellu þann 7. maí síðastliðinn. Fundurinn var vel sóttur þrátt fyrir að samgöngumál hefðu haft áhrif á að ekki reyndist mögulegt að halda fundinn í Vestmannaeyjum líkt og upphaflega stóð til. Sveinn Hreiðar Jensson, formaður stjórnar, setti fundinn og bauð gesti velkomna. Lagði hann til að Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SASS, yrði kjörin fundarstjóri og Árdís Erna Halldórsdóttir verkefnastjóri MSS fundarritari. Var það samþykkt samhljóða.