Ferðamálastofa á ferð um Suðurland
Fulltrúar Ferðamálastofu fóru í nóvember í tveggja daga vettvangsferð um vestanvert Suðurland ásamt starfsfólki Markaðsstofu Suðurlands. Ferðamálastofa fer reglulega í slíkar ferðir um landið til að kynna sér stöðu ferðaþjónustunnar og eiga samtal við fyrirtæki, sveitarfélög og aðra hagaðila.
Frá Ferðamálastofu komu Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri, Helen Hannesdóttir forstöðumaður þróunar- og þjónustusviðs og Elías Bj. Gíslason sérfræðingur. Frá Markaðsstofu Suðurlands tóku þátt Ragnhildur Sveinbjarnardóttir framkvæmdastjóri og Vala Hauksdóttir verkefnastjóri Áfangastaðaáætlunar Suðurlands.
Ferðamálastofa og Markaðsstofa Suðurlands vinna náið saman að málefnum ferðaþjónustunnar á svæðinu. Samstarfið snýr meðal annars að áfangastaðaáætlun Suðurlands, verkefnum á sviði ferðamála og miðlun upplýsinga um stöðu og þarfir ferðaþjónustunnar. Í síðustu vettvangsferð Ferðamálastofu um Suðurland var farið frá Hornafirði að Skógum. Að þessu sinni var því vestari hluti landshlutans tekinn fyrir.
Metnaðarfull uppbygging víða um landshlutann
Fyrri dagurinn hófst í Reykjaböðunum þar sem Brynjólfur J. Baldursson tók á móti hópnum. Hann kynnti áform um böðin og fjallaði um ferðaþjónustu í Reykjadal og Hveragerði og framkvæmdir sem þar hafa átt sér stað á undanförnum árum. Næst var komið við í Miðbæ Selfoss, þar sem Dagný Jóhannsdóttir tók á móti hópnum og sagði frá veitingarekstri á Selfossi og hvernig uppbygging Miðbæjarins hefur gert áfangastað úr bæ sem flestir óku áður í gegn um án lengri viðkomu. Hádegisverður var snæddur í Mjólkurbúinu Mathöll.
Þaðan var haldið í Þjórsárdal þar sem Hartmann Kárason tók á móti hópnum og sýndi framkvæmdir við Fjallaböðin ásamt gestastofu sem óðum rís við Þjórsárdalsskóg. Að því loknu var höfð viðkoma við Hjálparfoss og Fossabrekkur áður en ekið var til baka suður eftir Landsveitinni. Síðasta heimsókn dagsins var á 360 Hotel, þar sem Leó Árnason tók á móti hópnum og sagði frá nýlegri stækkun hótelsins. Að loknum degi var gist á Hótel Selfossi en þar opnaði nýverið veitingastaðurinn Ós.


Jarðhitinn sem grunnur að fjölbreyttri upplifun
Seinni daginn var fyrst haldið í Laugarás Lagoon, þar sem Ágúst Leó Sveinsson tók á móti hópnum og fjallaði um lónið og veitingastaðinn, sem nú hafa tekið á móti gestum í rúmt ár. Því næst var farið í Friðheima. Knútur Rafn Ármann tók á móti hópnum og sýndi sérstaklega jarðaberjaræktina sem hefur tekið miklum stakkaskiptum að undanförnu. Hádegisverður snæddur á Vínstofu Friðheima.
Í Aratungu í Reykholti var fundað með fulltrúum Bláskógabyggðar og Uppsveita Árnessýslu, Ástu Stefánsdóttur og Rakel Theódórsdóttur. Þar var rætt um stöðu ferðaþjónustunnar, helstu verkefni sveitarfélagsins og þær áskoranir sem óttast er að felist í innleiðingu Innviðagjalds á Gullna hrings svæðinu. Vettvangsferðinni lauk á Laugarvatni en þar hefur Fontana nýverið opnað á ný eftir stækkun og metnaðarfullar umbætur á aðstöðunni. Sigurður Rafn Hilmarsson gekk með hópnum, fjallaði um stækkunina og bauð að sjálfsögðu upp á hverarúgbrauðið sem fléttar saman mat, menningu og náttúru staðarins.
Ferðin gaf Ferðamálastofu tækifæri til að kynnast því sem er að gerast á vestanverðu Suðurlandi frá fyrstu hendi og ræða beint við fyrirtæki og sveitarfélög um stöðu, tækifæri og áskoranir ferðaþjónustunnar. Á milli viðkomustaða gafst jafnframt tækifæri fyrir fulltrúa Markaðsstofu Suðurlands til að fjalla nánar um svæðið og benda á tækifæri og áskoranir sem blasa við ferðaþjónustunni.
Við þökkum öllum kærlega fyrir góðar móttökur.



