Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Markaðsstofur mikilvægur hlekkur í sjálfbærri þróun ferðamála

Málstofa um samstarf sveitarfélaga og áfangastaðastofa um sjálfbæra þróun ferðamála fór fram í Fjölheimum á Selfossi 20.nóvember. Málstofan var haldin á vegum Land- og ferðamálafræði Háskóla Íslands í samstarfi við Ferðamálastofu.

Málstofa um samstarf sveitarfélaga og áfangastaðastofa um sjálfbæra þróun ferðamála fór fram í Fjölheimum á Selfossi 20.nóvember. Málstofan var haldin á vegum Land- og ferðamálafræði Háskóla Íslands í samstarfi við Ferðamálastofu. Þar voru kynntar niðurstöður rannsóknar á samstarfi og samvinnu sveitarfélaga og áfangastaðastofa (markaðsstofa) við sjálfbæra uppbyggingu ferðaþjónustu. 

Viðtöl tekin við sextán einstaklinga

Málstofunni stýrði Anna Karlsdóttir, dósent í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði. Íris Hrund Halldórsdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands, kynnti niðurstöður rannsóknarinnar en verkefnið byggði meðal annars á greiningu áfangastaðaáætlana og sóknaráætlana, ásamt viðtölum við sextán einstaklinga frá sveitarfélögum og áfangastaðastofum. Rannsóknin var styrkt af Byggðarannsóknarsjóði.

Áfangastaðastofur geta leitt samráð, bent á þarfir og stutt við forgangsröðun

Markaðsstofu gegna mikilvægu samhæfingar- og stuðningshlutverki

Niðurstöðurnar sýna að samstarf sveitarfélaga og áfangastaðastofa (markaðsstofa) er almennt talið gagnlegt og gegna áfangastaðastofurnar mikilvægu samhæfingar- og stuðningshlutverki. Umfang samstarfsins er þó mismunandi og virðist það markvissara þar sem formlegur samstarfsvettvangur er fyrir hendi. Einnig kom fram að ábyrgð á uppbyggingu og viðhaldi ferðamannastaða dreifist á marga aðila. Áfangastaðastofur geta leitt samráð, bent á þarfir og stutt við forgangsröðun en hafa almennt hvorki framkvæmdavald né fjárhagsleg úrræði til að fylgja verkefnum eftir.

Hvað eru Áfangastaðastofur?

Markaðsstofur landshlutanna gegna hlutverki svokallaðra Áfangastaðastofa, en það er þýðing á enska heitingu Destination management organization. Hlutverk þeirra er að styðja við sjálfbæra þróun ferðaþjónustu innan viðkomandi landshluta, í samráði við sveitarfélög, fyrirtæki og heimafólk. Kynntu þér Áfangastaðaáætlun Suðurlands á south.is/afangastadaaaetlun.

Pallborðsumræður staðfestu niðurstöður

Í pallborði sátu Vala Hauksdóttir frá Markaðsstofu Sðurlands, Margrét Björk Björnsdóttir frá Markaðsstofu Vesturlands, Elías Bj Björnsson frá Ferðamálastofu og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, lektor og fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst fyrir svörum. Sköpuðust þar góðar umræður um viðfangsefnið og var nokkur samhljómur um niðurstöður rannsóknarinnar. Fóru gestir því sáttir úr salnum með nýja þekkingu í farteskinu.

Skýrslan verður birt og gerð aðgengileg von bráðar en áhugasamir geta haft samband við Írisi irishh@hi.is eða Önnu annak@hi.is