Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mikill áhugi á söguslóðum á Suðurlandi

Góð þátttaka og metnaður einkenndi fyrstu vinnustofu Markaðsstofu Suðurlands um söguslóðir á Suðurlandi sem haldin var á Hótel Stracta á Hellu þann 11. nóvemer.
Alls mættu 11 þátttakendur og tóku virkan þátt í umræðum um tækifæri til að þróa og efla sögutengda upplifun á svæðinu.
 

Markmið vinnustofunnar var að kortleggja áhugaverðar sögur, staði og menningararf sem geta styrkt ferðaþjónustu og aukið sýnileika Suðurlands sem áfangastaðar. Í vinnustofunni komu fram fjölbreyttar hugmyndir um hvernig megi miðla sögu svæðisins á aðgengilegan og áhugaverðan hátt fyrir bæði innlenda og erlenda gesti.

Mikil áhersla var lögð á samstarf, nýsköpun og hvernig byggja megi á sérstöðu svæðisins til að skapa eftirminnilega upplifun. Umræður voru opnar og uppbyggilegar og ljóst að mikill áhugi er á áframhaldandi þróun söguslóða á Suðurlandi.

 Vinnustofan á Hellu var sú fyrsta í röð vinnustofa sem haldnar verða víðs vegar um Suðurland á næstu vikum. Niðurstöður þeirra munu nýtast við áframhaldandi uppbyggingu verkefnisins og stuðla að aukinni samvinnu um miðlun sögu og menningararfs svæðisins.

Næsta vinnustofa fer fram í Rauða húsinu á Eyrarbakka þann 18. Nóvember

 

Til stendur að vinnustofur verði haldnar á eftirtöldum stöðum á næstu misserum:

  • Eyrarbakki 18. nóvember kl 16-18 á Rauða Húsinu.
  • Kirkjubæjarklaustur 24. nóvember kl 11-13 á Hótel Klaustri. 
  • Vík -(tímasetning auglýst síðar)
  • Laugarvatn (tímasetning auglýst síðar)
  • Vestmannaeyjar (tímasetning auglýst síðar)
  • Höfn (tímasetning auglýst síðar)
  • Öræfi (tímasetning auglýst síðar)

Smelltu hér til að skrá þig á vinnustofu