Krosssala í ferðaþjónustu – hvernig getum við selt og bókað þjónustu hvert hjá öðru?
Á fundinum verður fjallað um samstarf og krosssölu milli ferðaþjónustuaðila og hvernig bókunarkerfi og tæknilegar tengingar geta stutt við slíkt samstarf.
- Þór Guðmundsson hjá Bókun | Tripadvisor fjallar um hvernig ferðaþjónustufyrirtæki geta nýtt krosssölu til að vinna betur saman, meðal annars með því að selja og bóka þjónustu hvert hjá öðru.
- Sverrir Steinn Sverrisson hjá Visit Group/GODO fjallar um hvernig fyrirtækið styður við samstarf, krosssölu og samþættingu milli ferðaþjónustuaðila og fer yfir dæmi um skandinavískar lausnir sem Visit Group hefur unnið með.
Fundurinn fer fram á Microsoft Teams og gert verður ráð fyrir góðum tíma fyrir spurningar og sameiginlegar umræður.
Hvenær: Þriðjudagur 24. nóvember kl. 9:00–10:00
Hvar: Microsoft Teams
Skráning: Ekki þarf að skrá sig sérstaklega á fundinn. Fundarboð á Microsoft Teams hefur verið sent til aðildarfyrirtækja og það eina sem þarf að gera er að samþykkja fundarboðið.
Athugið: Vegna vandkvæða við tölvupóstsendingar gætu einhverjir hafa fengið fleiri en eitt fundarboð eða misvísandi tilkynningar vegna fundarins. Fundurinn verður haldinn samkvæmt áætlun þriðjudaginn 24. nóvember kl. 9:00–10:00.
Hafi aðildarfyrirtæki ekki fengið upplýsingar um fundinn eða fundarboð er hægt að hafa samband við asa@south.is.