Krosssala og samstarf í ferðaþjónustu í brennidepli á morgunfundi
Markaðsstofa Suðurlands hélt rafrænan morgunfund 24. nóvember þar sem fjallað var um samstarf og krosssölu milli ferðaþjónustuaðila og þau tækifæri sem felast í því að fyrirtæki geti selt og bókað þjónustu hvert hjá öðru. Þór Guðmundsson hjá Bókun | Tripadvisor og Sverrir Steinn Sverrisson hjá Visit Group/GODO fluttu erindi og fóru yfir málefnið frá ólíkum sjónarhornum.
Þór Guðmundsson fjallaði meðal annars um hvernig ferðaþjónustufyrirtæki geta fengið meira út úr þeim bókunum sem þau þegar fá. Þar eru ýmis tækifæri, svo sem viðbótarsala, samsettar upplifanir og samstarf við önnur fyrirtæki á svæðinu. Með því getur fyrirtæki boðið gestum upp á fleiri vörur og þjónustu á sama tíma og virði hverrar bókunar eykst. Í erindinu kom jafnframt fram að krosssala getur verið leið til að tengja fyrirtæki enn betur saman. Ferðaþjónustufyrirtæki geta til dæmis endurselt ferðir og upplifanir annarra eða sett saman þjónustu fleiri aðila í eitt bókanlegt tilboð. Bókun Marketplace er dæmi um slíka leið, en markaðstorgið tengir saman birgja og endursöluaðila og getur þannig opnað fleiri söluleiðir fyrir fyrirtæki.
Sverrir Steinn Sverrisson nálgaðist krosssöluna meðal annars út frá gististöðum og því hvernig hægt er að tengja gistingu við afþreyingu og aðra þjónustu. Hann sýndi hvernig tæknilegar tengingar geta gert gestum kleift að bæta upplifun við gistibókun og jafnvel kaupa gistingu og afþreyingu saman í einu bókunarferli. Eitt af því sem kom skýrt fram á fundinum er að tækifærin snúast ekki eingöngu um einstaka sölu. Með auknu samstarfi geta fyrirtæki auðveldað gestum að finna og bóka fjölbreyttari upplifun á svæðinu, aukið sýnileika þjónustu hvers annars og skapað meiri verðmæti úr hverri heimsókn.
Fundinum lauk með umræðum og spurningum um hvernig ferðaþjónustuaðilar geta komið slíku samstarfi af stað og hvaða atriði þurfi að hafa í huga þegar kemur að kerfum, tengingum og samstarfi milli fyrirtækja.
Markaðsstofa Suðurlands þakkar Þór Guðmundsson og Sverri Steini Sverrissyni kærlega fyrir áhugaverð og hagnýt erindi og öllum sem tóku þátt í morgunfundinum.