Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sunnlenskir prjónarar sitja fjarfundi svo annað fólk komist til Íslands

Markaðsstofa Suðurlands tekur þátt í AI Knittakers, nýrri markaðsherferð Íslandsstofu sem fór í loftið 29. október. Herferðin beinist að fólki á lykilmörkuðum Íslands, svo sem í Bandaríkjunum og Bretlandi. Hugmyndin er einföld: í stað þess að senda gervigreindarforrit á fjarfund til að skrifa fundargerð getur starfsfólk fengið íslenskan prjónara til að sitja fundinn fyrir sig. Á meðan getur sá sem bókaði nýtt tímann í eitthvað annað, til dæmis ferðalag um Ísland.
Mynd: AI knittakers - Visit Iceland
Mynd: AI knittakers - Visit Iceland

Eitt prjónað orð í stað fundargerðar

AI stendur hér fyrir Authentic Icelandic, eða ekta íslenskir prjónarar. Prjónarinn tengist fjarfundinum, hlustar á umræðurnar, fylgist með stemningunni og prjónar svo eitt orð úr íslenskri ull sem fangar inntak fundarins. Að fundi loknum fær sá sem bókaði mynd af prjónaranum með orðið í höndunum, ásamt upplýsingum um prjónarann, sögu hans og landshlutann sem hann kemur frá.

Þjónustan er ókeypis og hægt er að bóka hana á AIKnittaker.com til 20. nóvember. Nærri 30 prjónarar úr öllum landshlutum taka þátt og herferðinni er beint að lykilmörkuðum Íslands erlendis.

Prjónarar af Suðurlandi leysa af

Hlutverk Markaðsstofu Suðurlands í verkefninu er að finna prjónara á Suðurlandi sem leysa af á fundum, svo að fólkið sem annars sæti fundinn geti notið tímans á ferðalagi um Ísland. Meðal sunnlensku prjónaranna er Heiðdís Einarsdóttir á Selfossi, og fleiri prjónarar af svæðinu eru að bætast í hópinn.

Heiðdís ólst upp á sauðfjárbúinu Götu, skammt frá Hellu, og kemur úr mikilli prjónafjölskyldu. Hún er örvhent og lærði að prjóna hjá ömmu sinni Sigurlaugu, sem var líka örvhent. „Mér finnst gott að prjóna þegar ég slaka á. Það veitir mér hugarró og er svo góð leið til að vera í núinu,“ segir Heiðdís.

Enn er verið að bæta í hóp prjónara. Prjónarar á Suðurlandi sem vilja taka þátt eru hvattir til að hafa samband við Markaðsstofu Suðurlands á info@south.is 

Tími fyrir það sem skiptir máli

Með herferðinni vill Íslandsstofa vekja athygli á sívaxandi fundamenningu og þeirri pressu að afkasta sem mestu á tímum gervigreindar, og kynna Ísland sem stað þar sem hægt er að hvílast og endurnærast í heitum laugum, náttúru og nýrri upplifun.

Herferðin er hluti af markaðsverkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar, sem Íslandsstofa rekur fyrir hönd íslenskrar ferðaþjónustu í samstarfi við stjórnvöld, Samtök ferðaþjónustunnar og markaðsstofur landshlutanna. Hún er unnin í samstarfi við Peel og M&C Saatchi. Þóra Hilmarsdóttir leikstýrði og Skot sá um framleiðslu.

Sjá nánar: www.AIKnittaker.com