Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Opnað fyrir skráningar á Mannamót 2027

Nú hefur verið opnað fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem verða haldin í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 28. janúar 2027.

Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem rúmlega þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt að kynnast betur fólki í ferðaþjónustu og fjölmörgum fagaðilum sem koma á Mannamót.

Ísland hefur upp á margt að bjóða, allan ársins hring og á Mannamótum eru sýnendur hvattir til þess að leggja sérstaka áherslu á það sem boðið er upp á yfir vetrartímann. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Isavia.

Einungis samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur í Mannamótum. Öllum er frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti.

Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem landsbyggðarfyrirtæki fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða uppá.

 

Skráning fer fram hér

 

Mannamót hluti af Ferðaþjónustuvikunni

Dagarnir 26. – 28. janúar 2027 verða helgaðir ferðaþjónustu. Þá verður lögð áhersla á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá undir merkjum Ferðaþjónustuvikunnar.

Aðstandendur Ferðaþjónustuvikunnar eru Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.