Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fréttir

Starfsfólk Markaðstofunnar á allsherjarfund landshlutasamtaka sveitarfélaga og Byggðastofnunar

Starfsfólk Markaðsstofu Suðurlands sótti dagana 11.–13. nóvember allsherjarfund landshlutasamtaka sveitarfélaga og Byggðastofnunar sem haldinn var í Borgarnesi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóðu að fundinum.
Photo: Jökulsárlón, Þorvarður Árnason

Travel + Leisure fjallar um viltar hliðar Suðurlands

Bandaríska ferðatímaritið Travel + Leisure fjallar um Suðurland í nóvemberhefti sínu 2026, en greinin birtist fyrst á vef tímaritsins 30. september. Greinina skrifar Peter Terzian og myndir tóku Federico Ciamei og Martina Giammaria. Í prentútgáfunni ber hún fyrirsögnina „Breaking the Ice“.

Suðurland í Outlook Travel Magazine

Breska ferðatímaritið Outlook Travel Magazine hefur gefið út nýjan ferðavísi um Suðurland, unninn í samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands. Vísirinn birtist í 26. tölublaði tímaritsins í september 2026. Hann er ætlaður bæði ferðamönnum og ferðaþjónustuaðilum og nær yfir allar árstíðir, frá miðnætursól sumarsins til vetrarmánaðanna.

Mikill áhugi á söguslóðum á Suðurlandi

Góð þátttaka og metnaður einkenndi fyrstu vinnustofu Markaðsstofu Suðurlands um söguslóðir á Suðurlandi sem haldin var á Hótel Stracta á Hellu þann 11. nóvemer.

Söguslóðir Suðurlands - Vinnustofur um mótun ferðaleiðar.

Markaðsstofa Suðurlands vinnur nú að þróun Söguslóða Suðurlands, verkefnis sem tengir saman sögu, menningu, náttúru og mannlíf svæðisins í heildstæða ferðaleið. Verkefnið hlaut styrk úr Byggðaáætlun í gegnum SASS.
Mynd: AI knittakers - Visit Iceland

Sunnlenskir prjónarar sitja fjarfundi svo annað fólk komist til Íslands

Markaðsstofa Suðurlands tekur þátt í AI Knittakers, nýrri markaðsherferð Íslandsstofu sem fór í loftið 29. október. Herferðin beinist að fólki á lykilmörkuðum Íslands, svo sem í Bandaríkjunum og Bretlandi. Hugmyndin er einföld: í stað þess að senda gervigreindarforrit á fjarfund til að skrifa fundargerð getur starfsfólk fengið íslenskan prjónara til að sitja fundinn fyrir sig. Á meðan getur sá sem bókaði nýtt tímann í eitthvað annað, til dæmis ferðalag um Ísland.
Gestur stendur í Laugarvatni við Laugarvatn Fontana og himinninn speglast í vatninu.

Baðlónin á Suðurlandi: böð, matur og umhverfi

Jarðhiti á Suðurlandi á sér langa sögu til baða og slökunar. Gamla laugin á Flúðum, elsta sundlaug landsins, var gerð árið 1891 og á Laugarvatni hefur gufubað verið nýtt yfir sjóðandi hver síðan um 1930. Á síðustu árum hefur þessi menning hins vegar tekið stórt stökk. Fjölmörg ný baðlón af öllum stærðum og gerðum hafa litið dagsins ljós, þar sem heit lón, gufuböð, kaldir pottar og hágæða veitingastaðir renna saman í eina heildræna vellíðunarupplifun fyrir gesti.

Opnað fyrir skráningar á Mannamót 2027

Nú hefur verið opnað fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem verða haldin í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 28. janúar 2027.

Menntamorgunn Ferðaþjónustunnar: Hvernig höldum við í gott fólk?

Menntamorgnar ferðaþjónustunnar fara nú aftur í gang með lækkandi sól en þeir eru opnir og ókeypis fræðsluviðburðir fyrir starfsfólk og stjórnendur í ferðaþjónustu í boði Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna.
Eldfell - Þráinn Kolbeinsson

Styrkir til uppbyggingar – umsóknarfrestir í október

Nú er tíminn til að sækja um styrki. Tveir sjóðir sem gegna lykilhlutverki fyrir ferðaþjónustu á Suðurlandi hafa umsóknarfrest í október:

Auglýst eftir umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2027. Umsóknarfrestur er til kl. 13 þann  27. október 2026 en umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina. 

Markaðsstofa Suðurlands tók þátt í Vestnorden í Nuuk á Grænlandi