Markaðsstofa Suðurlands tók þátt í Vestnorden í Nuuk í Grænlandi
Jelena Ohm, formaður stjórnar Markaðsstofu Suðurlands, fór fyrir hönd Markaðsstofunnar á ferðaráðstefnuna Vestnorden sem að þessu sinni var haldin í Nuuk í Grænlandi.
Vestnorden er haldin til skiptis á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi á vegum NATA, Ferðamálasamtaka Norður-Atlantshafsins. Þar hitta ferðaþjónustuaðilar frá löndunum þremur erlenda ferðasöluaðila á fyrirfram bókuðum fundum, og er kaupstefnan því mikilvægur vettvangur til að kynna áfangastaði og byggja upp viðskiptatengsl.
Á kaupstefnunni var lögð áhersla á að kynna Suðurland fyrir erlendum ferðasöluaðilum og öðrum gestum, og vekja athygli á þeirri fjölbreyttu náttúru, afþreyingu og þjónustu sem landshlutinn hefur upp á að bjóða allt árið um kring. Jafnframt voru kynntar ýmsar nýjungar hjá ferðaþjónustuaðilum á Suðurlandi.
Jelena átti fundi með fjölmörgum gestum ráðstefnunnar, sem var vel sótt og þótti almennt heppnast mjög vel. Fundirnir gáfu gott tækifæri til að heyra eftir hverju erlendir söluaðilar eru að leita og hvaða áhuga þeir hafa á Suðurlandi, og munu þær upplýsingar nýtast í áframhaldandi markaðsstarfi Markaðsstofunnar.


