Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fréttir

Aðalfundur og árshátíð 2026

Nú er loksins komið að því! Árshátíð og aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands fer fram fimmtudaginn 7. maí í Vestmannaeyjum! Dagurinn hefst með aðalfundi í Akóges salnum og ætlum við síðan að gleðjast saman um kvöldið á veitingastaðnum Einsa Kalda.
Fjölskylda við Stjórnarfoss. Ljósmyndari Þráinn Kolbeinsson

Spurt og svarað um ferðaþjónustuna á Suðurlandi

Hvað veist þú ekki um ferðaþjónustu á Suðurlandi? Við spurðum nokkra íbúa og frambjóðendur á Suðurlandi að þessu og ekki stóð á svörum, eða öllu heldur spurningum. Hér koma svör við því helsta sem fólk vildi vita um ferðaþjónustu og hvernig hún tengist starfsemi og rekstri sveitarfélaga.
Menntamorgunn Ferðaþjónustunnar

Menntamorgunn Ferðaþjónustunnar - Er íslensk ferðaþjónusta á öruggri leið?

Íslensk ferðaþjónusta hefur vaxið hratt á undanförnum árum en þeim vexti fylgir mikil ábyrgð. Eitt mikilvægasta vörumerki Íslands er öryggi; sú tilfinning gesta okkar að þeir séu í góðum höndum, hvort sem þeir ganga á jökla, keyra um hálendið eða njóta menningar í bæjum landsins. En erum við raunverulega á öruggri leið? Og hvernig getum við, sem heild, tryggt að ímynd Íslands sem öruggur áfangastaður standist tímans tönn?
Frá aðalfundi 2025 á Hótel Geysi

Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 2026

Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands verður haldinn fimmtudaginn 7. maí næstkomandi í Akóges salnum í Vestmannaeyjum, klukkan 12:30.
Fjölskylda í Reykjadal - Páll Jökull

Vinnustofur: Stefnan sett á Áfangastaðinn Suðurland

Hafðu áhrif á hvert ferðaþjónustan stefnir á Suðurlandi. Við bjóðum íbúum, sveitarfélögum, fyrirtækjum, leiðsögumönnum og stofnunum á opna vefvinnustofu í apríl.
Haustfegurð í Þórsmörk

Frönsk blaðamannaferð sem hefur skilað sér í dýrmætri umfjöllun um Suðurlandið í erlendum miðlum

Stór blaðamannaferð sem farin var um Suðurlandið í október síðastliðnum hefur fengið afar jákvæð viðbrögð frá frönsku blaðakonunum sem sóttu svæðið heim. Voru þær hæstánægðar með skipulagið, vel útfærða dagskránna sem bauð jafnt upp á ævintýri og rólegri stundir, og ekki síst var það þjónustan og hlýlegu móttökurnar sem heilluðu.

Menntamorgunn Ferðaþjónustunnar - Gesturinn í aðalhlutverki

Hvernig upplifa gestir „gæði“ í dag og hvernig er hægt að endurspegla það í daglegu verklagi? Hvað skiptir þá mestu máli þegar kemur að upplýsingum, væntingum og þjónustu? Horfðu á upptöku frá viðburðinum hér fyrir neðan.
RATSJÁIN fyrir Markaðsstofur landshlutanna

RATSJÁIN - endurmenntun fyrir Markaðsstofur landshlutanna

Ratsjáin er mörgum ferðaþjónustuaðilum að góðu kunn, en þar er um að ræða ákveðið verkfæri sem er ætlað stjórnendum og stuðningsumhverfi ferðaþjónustunnar til að auka hæfni sína og ná árangri í starfi.
Margmenni á Mannamótum

Mannamót Markaðsstofanna - faglegur og fjölmennur mannfögnuður!

Mannamót Markaðsstofanna fóru fram í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 15. janúar sl. og voru þau nú hin fjölmennustu síðan leikar hófust árið 2015. Að venju höfðu ferðaþjónustuaðilar af landsbyggðinni stillt upp fjölbreyttum kynningarbásum þar sem markmiðið var að gefa ferðaskrifstofum á höfuðborgarsvæðinu tækifæri til að kynna sér það sem landbyggðin býður upp á í afþreyingu, gistingu og mat.
Víkingaveisla Hótel Rangár og Caves of Hella.
Ljósm. Ingibjörg Friðriksdóttir

Húðflúrferðamennska ryður sér til rúms á Suðurlandi

Stundum skilur upplifun eftir sig spor. Og á Suðurlandi hefur ein menningarupplifun einmitt gert það — á óvæntan og ógleymanlegan hátt. Þrír erlendir gestir upplifðu nýlega Víkingaveisluna hjá Caves of Hella og Hótel Rangá í einum af fornu manngerðu hellunum á Hellu. Veislurnar eru haldnar við kertaljós og um leið gestirnir gæða sér á dýrindis réttum úr staðbundnu hráefni eru þeir leiddir í gegnum sögu svæðisins í tíma og rúmi. Upplifunin varð ansi mögnuð og talaði hún beint til þeirra- dýpra en nokkur bjóst við.
Hópmynd frá fundi Markaðsstofa landshlutanna á Vestfjörðum.

Markaðsstofur landshlutanna funda á Vestfjörðum

Markaðsstofur landshlutanna áttu sameiginlegan vinnufund dagana 12.-13.nóvember. Að þessu sinni var það Markaðsstofa Vestfjarða sem sá um skipulag fundarins.

Opnað fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna 2026

Nú hefur verið opnað fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem verða haldin í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 15. janúar 2026 frá klukkan 12 til 17.