Laugardaginn 10. september árið 2022 fer fram í níunda sinn utanvegahlaupið Þórsgata Volcano Trail Run í Þórsmörk. Hlaupið er opið öllu áhugafólki um utanvega- og fjallahlaup. Hlaupið er haldið í samstarfi við Hlaupár sem sér um hlaupastjórn.
Boðið er upp á tvær leiðir í ár, 12 km og 4,5 km og er styttri leiðin ný leið sem var í fyrsta sinn í boði í fyrra.
12 km hlaupið
Ræsing 10. september 2022, kl. 13:00 við skála Volcano Huts í Húsadal í Þórsmörk. Hlaupið endar á sama stað.
Leiðin: Hlaupið er inn Húsadalinn áleiðis upp Laugaveginn. Þegar komið er upp úr Húsadal er beygt af leið til hægri í áttina að Langadal og farið af stígnum upp á Slyppugilshrygg og meðfram honum þar til stígurinn liggur niður í Slyppugilið. Þá er beygt til vinstri áleiðis að Tindfjallasléttu og svo niður Stangarháls að Stóraenda. Þaðan er hlaupið eftir Krossáraurum að Langadal og stefnan tekin upp Valahnúk (275 m hækkun) og niður aftur að vestanverðu að endamarki í Húsadal.
Kort af leiðinni er neðst á þessari síðu.
4,5 km hlaupið
Ræsing 11. september 2021 kl. 13:15 við skála Volcano Huts í Húsadal í Þórsmörk. Hlaupið endar á sama stað.
Leiðin: Hlaupið er inn Húsadalinn og þaðan farið inn á stíg sem liggur að Langadal. Þegar komið er í Langadal þá er Haldið upp Valahnúk (275 m hækkun) og niður aftur að vestanverðu að endamarki í Húsadal.
Leiðin hentar jafnt þeim sem vilja fara hratt yfir og einnig þeim sem vilja taka létt skokk eða ganga.
Skráning og þátttökugjöld
Opnað hefur verið fyrir skráningu hér á hlaup.is og eru þátttökugjöld sem hér segir:
12 km
- Skráningar til 30. júní: kr. 7.900
- Skráningar frá 1. júlí - 8. september: kr. 8.900
- Skráningar frá 9. september - 10. september: kr. 12.900
4,5 km
- Skráningar til 30. júní: kr. 2.900
- Skráningar frá 1. júlí - 8. september: kr. 3.400
- Skráningar frá 9. september - 10. september: kr. 3.900
Lokað verður fyrir forskráningar hér á hlaup.is kl. 18 föstudaginn 9. september en hægt verður að skrá sig á staðnum til kl. 12:00 þann 11. september.
Hámarksfjöldi í 12 km hlaupið er 400 manns.
Afhending gagna
Nánari upplýsingar um afhendingu gagna verða birtar á Facebooksíðu hlaupsins þegar nær dregur.
Verðlaun og ýmsar upplýsingar
Innifalið í þátttökugjaldi er aðgangur að sturtum, gufubaði og baðlaug eftir hlaupið en einnig er hægt að bóka gistingu í Húsadal, mat eftir hlaup og hægt er að bóka rútur á vefsíðu hlaupsins Þórsgata Volcano Trail Run þegar nær dregur. Rútur fara frá Reykjavík, Hvolsvelli og Krossá.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sæti karla og kvenna. Í stað þess að veita þátttökuverðlaun (medalíu) verður samsvarandi upphæð veitt í umhverfissjóð Volcano Trails til uppbyggingar, merkinga og viðhalds göngu- og hlaupaleiða í Þórsmörk.
Brautarverðir verða á völdum stöðum á leiðinni. Stígur er greinilegur mestan hluta leiðarinnar og brautin merkt með stikum.
Engar drykkjastöðvar verða nema í endamarki en vatn rennur í lækjum hér og þar meðfram leiðinni þar sem hægt er að fylla á brúsa.
Hlaupið er haldið af Volcano Trails í Húsadal Þórsmörk í samstarfi við Hlyn og Þórdísi hjá Hlaupári sem sjá um hlaupstjórn.
Hér geta allir tekið þátt. Við hvetjum fólk til að taka fjölskylduna með. Tilvalið að taka börnin og/eða ömmu/afa með til að fara 4,5 km leiðina.
Ábendingar og fyrirspurnir er varða hlaupið sendist á hlaupar@hlaupar.is