Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Leirlista- og skúlptúr smiðjur fyrir fullorðna á Listasafni Árnesinga.

5.- 6. ágúst

Upplýsingar um verð

30000 isk.
Leirlista- og skúlptúr smiðjur fyrir fullorðna á Listasafni Árnesinga
5. og 6. ágúst frá kl. 13-16.
Thomasine Giesecke listakona frá París mun leiðbeina þessum smiðjum sem fer fram helgina 5. og 6. ágúst. Um er að ræða tvær mjög mismunandi aðferðir í skúlptúr, sú fyrsta er að móta úr leir í anda listaverksins Ung stúlka eftir Gerði Helgadóttur og sú seinni er að tálga í sápustein í anda tréskurðameistarans Halldórs Einarssonar en verk eftir báða listamennina má sjá á sýningunni Hornsteinn á Listasafni Árnesinga.
Lýsing:
Á laugardeginum 5. ágúst verður eingöngu notast við leir, þátttakendur skissa fígúru og út frá teikningunni móta hana í leir. Smiðjan hentar vel byrjendum sem vilja læra að móta líkama skref fyrir skref.
Á sunnudeginum 6. ágúst er svo áherslan á að tálga taflmann úr sápusteini innblásið af skáksetti Halldórs Einarssonar. Thomasine mun leiðbeina þessari aðferð skref fyrir skref.
Thomasine er sænsk/frönsk listakona búsett í París og vinnur á Orsay listasafninu. Hún hefur unnið í stærstu söfnum í París og haldið ótal smiðjur og námskeið fyrir bæði fullorðna og börn. Thomasine mun bjóða upp á nokkrar smiðjur á Listasafni Árnesinga á meðan dvöl hennar stendur.
Skráning er nauðsynleg á fraedsla@listasafnarnesinga.is
Kostnaður: 30000 kr og efniskostnaður er innifalinn.
Takmarkað pláss.

GPS punktar

N63° 59' 46.982" W21° 11' 6.057"

Staðsetning

Austurmörk 21, Hveragerðisbær, Iceland

Sími