Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Iceland Bike Farm

- Hjólaferðir

Við erum lítið fjölskyldufyrirtæki rétt hjá Kirkjubæjarklaustri og bjóðum upp á fjallahjólaferðir, fjallahjólanámskeið sem og ýmsa aðra viðburði. Við erum svo lánsöm að vera með heimsklassa hjólaslóða í bakgarðinum okkar, sem kindurnar hafa lagt grunninn að síðustu aldirnar, og eru enn að.

Hjólaferðirnar okkar henta flestum sem hafa eitthvað hjólað áður, allt frá þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á fjallahjóli til reyndra fjallahjólara. Við bjóðum upp á hálfan dag og heilsdags ferð með leiðsögn, hvort sem þú kemur með þitt eigið fjallahjól eða leigir fulldempað hjól hjá okkur.

Frá og með sumrinu 2020 bjóðum við upp á gistingu í litlum A-húsum með uppábúnum rúmum og aðgengi að notalegri nýuppgerðri hlöðu þar sem hjólafólk getur átt góðar stundir saman í lok hjóladags. Þar er líka sauna sem gott er að láta líða úr sér eftir hjólaferð. Sameiginlegt sturtu- og salernisaðstaða og eldunar- og grillaðstaða.

Við hlökkum til að taka vel á móti ykkur, hvort sem það eru enstaklingar, fjölskyldur eða hópar

Sumar 2021 verð á mann:
Hálfur dagur (~3 klst): 6.500 kr
Heill dagur (~6 klst): 17.000 kr /14.500 fyrir 14 ára og yngri
Fjölskylduvæn ferð (~4 klst): 15.000 kr fyrir fullorðna og 12.500 fyrir börn

Gisting í uppábúnu rúmi í smáhýsi: 20.000 kr fyrir 1-2 / 30.000 fyrir 3-4
Leiga á fulldempuðu rafmagnshjóli: 15.000 kr

Iceland Bike Farm

Iceland Bike Farm

Við erum lítið fjölskyldufyrirtæki rétt hjá Kirkjubæjarklaustri og bjóðum upp á fjallahjólaferðir, fjallahjólanámskeið sem og ýmsa aðra viðburði. Við
Prestsbakkakirkja á Síðu

Prestsbakkakirkja á Síðu

Kirkja var áður á Kirkjubæjarklaustri en hún var færð að Prestsbakka 1859 vegna sandfoks á Klaustri. Hönnuður Hans Heinrich Schütte arkitekt og byggin

Aðrir (1)

Adventure Hótel Geirland Síða 880 Kirkjubæjarklaustur 487-4677