Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sumardagskrá í Alviðru: Jarðfræðin í nágrenni

14. ágúst kl. 14:00-16:00

Laugardaginn 14. ágúst kl. 14-16 fræðir Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur fyrrum formaður Landverndar og núverandi starfsmaður Náttúruminjasafns Íslands gesti og gangandi um jarðfræðina í nágrenni Alviðru, fræðsluseturs Landverndar.

Jarðfræðin umhverfis Alviðru

Fjallað verður um jarðfræði og jarðsögu svæðisins á áhugaverðan og almennan hátt – svo sem um Suðurlandsskjálftabeltið; Kerið, Seyðishóla og eldvirknina í Grímsnesinu; myndun Ingólfsfjalls; fallvötnin Sogið og Hvítá; og ýmis önnur jarðfræðifyrirbrigði á Suðurlandi.

Alviðra fræðslusetur Landverndar stendur í sumar fyrir metnaðarfullri og áhugaverðri sumardagskrá fyrir gesti og gangandi. Alviðra á í góðu samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands um dagskránna, en þessar stofnanir leggja sumardagskrá Alviðru til sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum.

Alviðra er í Ölfusi, stendur undir Ingólfsfjalli, gegnt Þrastalundi.

Þátttaka er gjaldfrjáls og öllum opin.

Verið velkomin.

GPS punktar

N64° 0' 2.002" W20° 59' 1.255"

Staðsetning

Alviðra umhverfisfræðslusetur Landverndar