Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sælkerarölt um Reykholt

25. júní - 27. ágúst

Upplýsingar um verð

Frítt

Sælkerarölt um Reykholt alla föstudaga kl. 11:00, gestum að kostnaðarlausu.

Gestum býðst að kynnast Reykholti í Bláskógabyggð, ásamt öllu því sem þorpið hefur upp á að bjóða. Stoppað er á ýmsum stöðum, sagt frá sögu og sérkennum Reykholts, bragðað á alls kyns vellystingum og gestum boðið að kaupa sér góðgæti til að njóta þegar heim er komið!

Gengið verður alla föstudaga kl. 11:00 í sumar. Gangan tekur um 2 klst og er auðveld, og hentar því öllum aldurshópum.

Gangan er fríkeypis en vinsamlegast bókið fyrirfram með því að hafa samband í gegnum fridheimar@fridheimar.is

Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!

GPS punktar

N64° 39' 57.123" W21° 17' 13.632"

Staðsetning

Reykholt