Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hamflettur - Sigga Björg Sigurðardóttir & Mikael Lind

2. mars - 25. ágúst

Myndbandsinnsetning Siggu Bjargar Sigurðardóttur og Mikaels Lind, Hamflettur, er unnin sérstaklega fyrir sýninguna. Innsetningin samanstendur af 30 vídeóverkum og 30 hljóðverkum unnum fyrir 3 skjávarpa og 6 hátalara.

Sigga Björg vinnur jöfnum höndum að hlutbundnum og óhlutbundnum teikningum á pappír, ásamt því að mála og teikna beint á veggi. Hún hefur skapað fjölmörg myndbandsverk er byggja á stop-motion tækni þar sem hver rammi hreyfimyndarinnar er handteiknaður. Á sýningunni má auk vídeóverkana sjá teikningarnar þrjátíu sem uðru til við gerð myndbandsverkanna og mætti líta á þær teikningar sem hreyfimyndir jafnvel þótt þær séu unnar með blýanti, penna og vatnslit á pappír. Teikningarnar eru unnar lag fyrir lag og teknar upp ramma fyrir ramma, eru því tengsl teikninganna við myndbandsverkin órjúfanleg.

Hljóðheimur myndbandsinnsetningarinnar er unninn af raftónlistarmanninum Mikael Lind en þau Sigga Björg hafa unnið saman að fjölda myndbandsverkefna á síðastliðnum árum. Mikael túlkar liti og hreyfingar myndefnisins með einstökum hljóðheimi sem einkennist af fjölbreyttum raftónlistarstílum. Hljóðverkin spanna allt frá ambient og musique concrete yfir í hreina techno tónlist. Hljóðheimur Mikaels vinnur á áhrifaríkan hátt að því að opna fyrir og skapa rými innan heildarverksins. Í verkum Siggu Bjargar mætast hlutbundnar línuteikningar, litríkir heimar og hliðarheimar, sem gefa til kynna að skynjunarvíddirnar séu fleiri en fimm og veita innsýn í magík og möguleika okkar til að vefa saman flóknari raunveruleika-mynstur en við könnumst sjálf við í daglegu lífi okkar, og þræða okkur þannig eftir ófyrirsjáanlegum leiðum inn í framtíðina.

Sigga Björg Sigurðardóttir (f. 1977) býr og starfar í Reykjavík. Verk hennar hafa verið sýnd víða erlendis og í helstu listasöfnum og listrýmum á Íslandi. Verk hennar eru í safneignum helstu listasafna hér á landi auk safna á Norðurlöndunum, Englandi, Sviss og Þýskalandi. Sigga Björg útskrifaðist með MA gráðu frá Glasgow School of Art (2004) og útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands (2001).

Mikael Lind (f. 1981) býr og starfar í Reykjavík. Hann hefur gefið út fjórar breiðskífur auk fjölda stafrænna útgáfa, bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra. Mikael hefur spilað tónlist sína í fjölda tónleikarýma á Íslandi og víða í Evrópu. Mikael er með Meistaragráðu í stafrænum tónsmíðum (e. digital composition) frá Edinborgarháskóla.

GPS punktar

N63° 59' 46.982" W21° 11' 6.057"

Staðsetning

Austurmörk 21, Hveragerðisbær, Iceland

Sími