Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Friðland í Flóa; fuglaskoðun og ganga

23. júní kl. 19:00-20:30
Miðvikudag 23. júní 2021 kl.19.00 verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa og leiðsögumaður að þessu sinni er Anna Maria Lind Geirsdóttir starfsmaður Fuglaverndar. Brottför er frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu

Fuglaskoðunin hefst kl. 19:00.
Tímalengd: 1-1,5 klt.
Nauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél. Hlýr fatnaður.
Mikilvægur útbúnaður: Sjónauki.
Hámarksfjöldi er 20 manns.
Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 miðvikudag 23. júní.
 
Gera má ráð fyrir rúma klukkustundar göngu og stöður til að sjá, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu. Hlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa, vettlingar og ullarsokkar. Það er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin. Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómurinn.
Friðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar.
 
Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Hámarksfjöldi er 20 manns.

GPS punktar

N63° 54' 0.716" W21° 11' 24.760"

Staðsetning

Friðaland í Flóa