Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf að vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Aðal málið er pakka, nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir að taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.

Veðurfar

Hiti 9°C / 48.2F

Meðaltal - efri mörk 12°C / 53.6F

Meðaltal - neðri mörk 5°C / 41F

Úrkoma 7mm/dag

Tímar af dagsbirtu 13

Við hverju má búast

Haustlitirnir skarta sínu fegursta í september og tilvalið að bregða sér í haustlitaferð. Hafið í huga að veður getur breyst hratt og mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum og taka stöðuna reglulega. September getur bæði verið vinda- og rigningasamur svo mundu eftir hlífðarfötum. Jafndægur að hausti eru 22.-23. September.

Hvað á að taka með?

  • Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
  • Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
  • Létt lög af fötum (síðermaboli, létta jakka o.þ.h.)
  • Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sterkir gönguskór með góðum sóla
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar(sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)

 

September er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði

Viðburðir