Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Aðal málið er að pakka, nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.

Veðurfar

Hiti 2°C / 35.6F

Meðaltal - efri mörk 5°C / 41F

Meðaltal - neðri mörk -1°C / 30.2F

Úrkoma 5mm/dag

Snjódagar 8

Tímar af dagsbirtu 12

Við hverju er að búast

Í mars þurfa ökumenn að hafa í huga að þegar sólin er lágt á lofti geta skapast krefjandi aðstæður við akstur. Þótt tekið sé að vora má enn búast við öllum veðrum og að skjótt skipast veður í lofti. Hlýr og skjólgóður vetrarklæðnaður er nauðsynlegur. Hreindýr eru á suðausturlandi og ættu ökumenn að vera vakandi fyrir þeim, sérstaklega á fjallvegum. Von bráðar draga norðurljósin sig í hlé fyrir sumarið. Sumarjafndægur eru 20. mars.

Hvað þarf að taka með?

  • Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
  • Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
  • Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sterkir gönguskór með góðum sóla
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar(sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)

 

Mars er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði