Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf að vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Aðal málið er pakka, nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir að taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.

Veðurfar

Hiti 1°C / 33.8F

Meðaltal - efri mörk 4°C / 39.2F

Meðaltal - neðri mörk -2°C / 28.4F

Úrkoma 5mm/dag

Snjódagar 9

Tímar af dagsbirtu 5

Við hverju má búast

Yfir háveturinn má búast við öllum veðrum og skjótt skipast veður í lofti. Hlýr og skjólgóður vetrarklæðnaður er nauðsynlegur. Þegar snjóar á fjöllum fikra hreindýr sig niður á láglendið í Ríki Vatnajökuls svo ökumenn þurfa að hafa varann á. Það dimmir snemma svo ferðamenn gætu þurft að taka styttri dagleiðir. Norðurljós sjást á himni. Vetrarsólstöður eru á bilinu 20.-22. desember.

Hvað þarf að taka með?

  • Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
  • Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
  • Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sterkir gönguskór með góðum sóla
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar(sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)

 

Desember er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði

Viðburðir