Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf að vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Aðal málið er pakka, nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir að taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.

Veðurfar

Hiti 11°C / 51.8F

Meðaltal - efri mörk 15°C / 59F

Meðaltal - neðri mörk 7°C / 44.6F

Úrkoma 4mm/dag

Tímar af dagsbirtu 17

Við hverju má búast

Um miðjan mánuð tekur sumri að halla og daginn að stytta. Um leið fer að bera á haustlitum í náttúrunni og hægt er að fara í berjamó. Hafðu í huga að þú þarft leyfi landeiganda ef þú vilt tína meira en “bara upp í þig.” Ágústkvöldin geta verið einstaklega notaleg þegar enn er hlýtt í veðri en dimmt verður á kvöldin. Ágúst getur verið rigningasamur svo mundu eftir hlífðarfötum.

Hvað á að taka með?

  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Létt lög af fötum (síðermaboli, létta jakka o.þ.h.)
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sterkir gönguskór með góðum sóla
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar(sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)
  • Skordýrafælur/flugnanet
  • Augnhlíf/svefngrímu

 

Ágúst er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði

Viðburðir