Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf að vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Aðal málið er pakka, nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir að taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.

Veðurfar

Hiti 4°C / 39.2F

Meðaltal - efri mörk 8°C / 46.4F

Meðaltal - neðri mörk 1°C / 33.8F

Úrkoma 4mm/dag

Snjódagar 2

Tímar af dagsbirtu 15

Við hverju er að búast

Í apríl er allra veðra von. Það má enn búast við kulda og dimmviðri en dagarnir geta líka verið bjartir og sólríkir, jafnvel hlýir. Hreindýr er að finna á suðausturlandi og ættu ökumenn að vera vakandi fyrir þeim, sérstaklega á fjallvegum. Sumardagurinn fyrsti er seinni partinn í apríl.

Hvað þarf að taka með?

  • Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
  • Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
  • Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sterkir gönguskór með góðum sóla
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar(sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)

 

Apríl er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði