Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Matarkort Suðurlands

Matarauður Suðurlands er verkefni sem Markaðsstofa Suðurlands hefur verið að vinna að síðasta árið með styrk frá Matarauði Íslands. Verkefnið fólst í því að kortleggja Matarauð Suðurlands í sambandi við matarhefðir, veitingastaði sem eru starfandi í landshlutanum og þá matvælaframleiðslu sem er á Suðurlandi.
Matarauður Suðurlands
Matarauður Suðurlands

Matarauður Suðurlands er verkefni sem Markaðsstofa Suðurlands hefur verið að vinna að síðasta árið með styrk frá Matarauði Íslands. Verkefnið fólst í því að kortleggja Matarauð Suðurlands í sambandi við matarhefðir, veitingastaði sem eru starfandi í landshlutanum og þá matvælaframleiðslu sem er á Suðurlandi.

Markaðsstofa Suðurlands bauð upp á fjórar vinnustofur um mat og vöruþróun í byrjun sumars þar sem allir þeir sem vinna með mat allt frá framleiðslu til framreiðslu var velkomið að sækja. Erindi voru frá Kristínu Maríu Sigþórsdóttur upplifunarhönnuði, Gísla Matthíasi Auðunssyni matreiðslumeistara hjá Slippnum, Bjarka Þór Sólmundssyni hjá Bragganum,  Arndísi Soffíu Sigurðardóttur hjá Hótel Fljótshlíð og Svavari og Berglindi hjá Havarí. Markmið með vinnustofunum var að veita innblástur, gefa rými til samtals á milli aðila og vinna gögn til að nýta í kortlagningu Matarauðs Suðurlands.

Afurð verkefnisins eru tvö matarkort á rafrænu formi, annarsvegar kortlagning á veitingarstöðum og hinsvegar matvælaframleiðslu á Suðurlandi. Matarkortin eru lifandi, fyrirtæki breytast stöðugt þannig að uppfæra þarf kortin reglulega. Einnig voru staðir flokkaðir eins og hægt er miðað við þær upplýsingar sem voru til staðar. Ákveðið var því að vista kortin inn á kortavef Google svo að auðvelt verði að bæta við stöðum sem og taka staði út sem ekki lengur eru í rekstri. Allar ábendingar eru vel þegnar um hvað vantar inn á kortið eða hvaða staðir eru ekki lengur í rekstri/framleiðslu.

Kortlagning þessi er góður grunnur fyrir önnur verkefni sem unnin verða á Suðurlandi sem byggð er á þeim matarauði sem Suðurland hefur yfir að ráða, þar má sem dæmi nefna nýjar og eldri ferðaleiðir þar sem þemað er maturinn, markaðsverkefni ýmiskonar eða vinna með sjálfbærni og mat.

Kortin má finna á þessari slóð: Matarauður Suðurlands

Allar ábendingar og fyrirspurnir vegna matarkortanna berast á netfangið info@south.is