Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mannamót Markaðsstofanna - faglegur og fjölmennur mannfögnuður!

Mannamót Markaðsstofanna fóru fram í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 15. janúar sl. og voru þau nú hin fjölmennustu síðan leikar hófust árið 2015. Að venju höfðu ferðaþjónustuaðilar af landsbyggðinni stillt upp fjölbreyttum kynningarbásum þar sem markmiðið var að gefa ferðaskrifstofum á höfuðborgarsvæðinu tækifæri til að kynna sér það sem landbyggðin býður upp á í afþreyingu, gistingu og mat.
Margmenni á Mannamótum
Margmenni á Mannamótum

Kraftur í sunnlenskri ferðaþjónustu

Sunnlensk fyrirtæki voru í fararbroddi í ár, og voru þau 77 talsins af þeim 260 fyrirtækjum sem tóku þátt. Alls er gert ráð fyrir að á milli 17-1800 gestir hafi lagt leið sína í Kórinn þennan dag. Sá kraftur sem ríkir í sunnlenskri ferðaþjónustu endurspeglar mikilvægi greinarinnar í landshlutanum. Í nýlegri samantekt Sambands sunnlenskra sveitarfélaga kemur fram að Suðurlandið leiðir vöxt í heildaratvinnutekjum á landinu og þar spilar ferðaþjónustan veigamikið hlutverk.

Suðurlandið á Mannamótum

Maður er manns gaman

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna eru ekki aðeins ferðakaupstefna heldur er einnig markmið viðburðarins er að skapa samtal og tengsl milli fyrirtækja sem og að auka sýnileika landsbyggðarinnar í ferðaþjónustu á Íslandi. Eru sífellt fleiri fyrirtæki sem nýta sér viðburðinn til að gera sér dagamun og hitta kollega sína úr atvinnugreininni hvaðanæva af landinu. Er það mjög gleðilegt að sjá þar sem slík tengslamyndum, þar sem aðilar hafa tækifæri til að sýna sig og sjá aðra, er oft vandasöm í ferðaþjónustunni.

Þátttaka í Mannamótum er háð aðild í einni af Markaðsstofum landshlutanna og bætist því jafnan í hóp aðildarfélaga fyrir viðburðinn. Tökum við öllum nýjum félögum fagnandi og hvetjum áhugasama til að setja sig í samband við okkur hjá Markaðsstofu Suðurlands. Nánari upplýsingar um samstarfið og skráningu má finna á þessari síðu.

Að lokum þökkum við stöllur hjá markaðsstofunni öllum sem komu að Mannamótum kærlega fyrir þátttökuna og hlökkum til að hefja leika á ný að ári!

Fleiri myndir af Mannamótum 2026 má finna hér