Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Börn á öllum aldri skemmta sér vel  í Uppsveitunum, þar er margt hægt að gera.
Þar eru dýragarðar, hestaferðir, opin gróðurhús, opin fjós, opinn sveitabær, gönguferðir í skóginum eða upp á fell.  Útivist,  sund, veiði,  golf, fótboltagolf, frisbígolf, ærslabelgur, leikvellir og íþróttavellir.

Gisting
Tjaldsvæði, hótel, gistiheimili, bændagisting, farfuglaheimili, sumarhús, íbúðir og fjallaskálar
www.sveitir.is
www.south.is

Afþreying

Söfn/sögustaðir/sýningar fyrir fjölskylduna

  • Laugarvatnshellar, heimsókn í helli með leiðsögn 
  • Margmiðlunarsýning í Fræðslumiðstöðinni á Hakinu á Þingvöllum
  • Skálholt, sögustaður, sumartónleikar, gönguleiðir
  • Sólheimar Grímsnesi, listhús og “Menningarveisla”
  • Sólheimar Hrunamannahreppi, Samansafnið, minjasafn og fornbílar
  • Virkjanir, sýningar opnar á sumrin
  • Ljósafosstöð

Útivist / Gönguferðir/stígar

  • Á Þingvöllum er skipulögð dagskrá á sumrin, gönguferðir
  • Skipulagðar gönguferðir í Hrunamannhreppi á sumrin
  • Þeir sem hafa áhuga á fuglum geta fundið fjölmargar tegundir í uppsveitunum. 
  • Veiðileyfi er víða hægt að fá og renna fyrir lax eða silung í ám og vötnum.
  • Gönguleiðir í skógum: Í Þrastaskógi, Haukadalsskógi og á Laugarvatni eru merktir göngustígar. Á Laugarvatni og í Haukadal eru bálhús og hreinlætisaðstaða.
  • Í nágrenni Laugarvatns og nágrenni Flúða eru merktar gönguleiðir. 
  • Fjöll og fell til fjallgöngu fyrir alla fjölskylduna.

Kort og leiðir að finna á www.sveitir.is

Dýragarðar

  • Slakki í Laugarási, húsdýragarður.  Dýragarðurinn í Slakka á Facebook

Sveitaheimsókn

  • Efsti-Dalur ferðamannafjós þar sem fylgjast má með mjöltum, ís- og ostagerð ásamt því að borða veitingar beint frá býli á veitingastað og í ísbúð.
  • Garðyrkjubýlið Friðheimar, fræðsla um jarðhita og garðyrkju og veitingar í gróðurhúsi.  
    Hestasýningar skv. pöntun. 

 Hestar

Sund - Gufa
Sundlaugin Flúðum, Laugarvatni, Úthlíð, Reykholti, Borg, Hraunborgum, Laugarvatn Fontana  
Gamla laugin/Secret lagoon náttúrulaug - Hvammi Flúðum 

Fótboltagolf
Fótboltagolf nálægt Flúðum, Markavöllur 

Leikvellir
Lækjargarðurinn á Flúðum, ærslabelgur og frisbígolf
Íþrótta- og leikvellir í öllum byggðakjörnum. Strandblak á Flúðum og Laugarvatni.

Golf
Fjölmargir góðir golfvellir eru á svæðinu og golfskálar sem selja veitingar.
Efra-Sel Flúðum, Kiðjaberg, Öndverðanes, Hraunborgir, Geysir Haukadal, Úthlíð,
Dalbúi Miðdal.

Önnur afþreying

Áhugaverðir staðir
Þingvellir, Gullfoss, Geysir, Kerið, Laugarvatn, Skálholt, Brúarhlöð, Þrastaskógur, Haukadalsskógur, Byggðakjarnar.

Matur
Fjölbreyttir veitingastaðir af öllum gerðum, eitthvað fyrir alla.  Uppsveitirnar eru sannkölluð matarkista og víða er hægt að kaupa grænmeti og alls kyns framleiðslu beint frá býli.


Matarupplifun

  • Friðheimar tekið á móti hópum og einstaklingum í  “Matarupplifun í gróðurhúsi” alla daga
    Fræðsla og veitingar        
  • Efsti-Dalur ferðamannafjós þar sem fylgjast má með mjöltum, ís- og ostagerð ásamt því að borða veitingar beint frá býli á veitingastað og í ísbúð. 

 Beint frá býli

  • Litla Bændabúðin Flúðum, Garðyrkjustöðin Melar, opið allt árið fjölbreyttar vörur beint frá býli
  • Hólabúðin Laugardalshólum, kjöt, grænmeti og fleiri vörur.
  • Silfurtún Flúðum, jarðarber og grænmeti, Silfurber
  • Garðyrkjubýlið Friðheimar, “Litla tómatbúðin” grænmeti og fleiri vörur 
  • Garðyrkjustöðin Ártangi plöntur, krydd og fleiri vörur 
  • Garðyrkjustöðin Brúará Böðmóðsstöðum, grænmeti.
  • Garðyrkjustöðin Heiðmörk Laugarási, grænmeti

Uppsveitirnar eru kjörinn áfangastaður fyrir alla fjölskylduna. Gistimöguleikar eru af öllum gerðum. Fjölmargir góðir veitingastaðir og er hver og einn þeirra með sína sérstöðu. 
Áhersla er lögð á hollt og gott hráefni úr nærumhverfi enda eru Uppsveitirnar mikil matarkista.
Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu og njótið þess sem svæðið hefur uppá að bjóða. 

Allar nánari upplýsingar má finna á www.sveitir.is og www.south.is  
Við erum tilbúin til að aðstoða við að gera heimsóknina ánægjulega.