Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Á Suðurlandi finnur þú þá gistingu sem þér hentar hverju sinni. Hér eru hótel bæði stór og smá, allt frá fullkomnum ráðstefnuhótelum til lítilla og persónulegra sveitahótela. Gistiheimili, bændagistingu á sveitabæjum, og gistingu í smáhýsum er víða að finna. Þá eru nokkur góð tjaldsvæði á Suðurlandi, allt upp í lúxustjöld (glamping), oft í tengslum við aðra þjónustu. Til fjalla eru nokkrir staðir sem bjóða góða gistingu allt frá svefnpokagistingu til lúxus hótelherbergja, einnig eru þar víða hefðbundnir fjallaskálar þar sem hægt er að kaupa svefnpokapláss.

Hótel

Á Íslandi er fjöldinn allur af hótelum í ýmsum verð- og gæðaflokkum. Flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Gistiheimili

Um allt land má finna gistihús, mörg hver einkarekin. Gistihús eru oftast minni og persónulegri en hótel og yfirleitt ódýrari.

Íbúðir

Íbúðagisting er hentugur valkostur fyrir þá sem gjarnan vilja vera út af fyrir sig, elda sjálfir og komast í nánari snertingu við heimamenn.Hægt er að velja úr íbúðagistingu í ýmsum verðflokkum.

Tjaldsvæði

Ódýrasta gisting sem völ er á. Fjölmörg tjaldstæði eru um allt land, flest opin frá maí og fram í september.

Farfuglaheimili og hostel

Einföld og ódýr gisting, sem hentar þeim sem vilja ekki eyða of miklu í gistingu. Farfuglaheimili eru sérstaklega vinsæl hjá yngra fólki sem kýs einfaldan ferðamáta.

Bændagisting

Gisting á bóndabæ er alveg sérstök upplifun og fyrir þá sem vilja reyna eitthvað nýtt og komast nær fólkinu í landinu er bændagisting frábær kostur.

Sumarhús

Það er notalegt að gista í sumarhúsi og slík gisting er sérstaklega hentug þegar fleiri ferðast saman.

Fjallaskálar

Á hálendi Íslands eru fjallakofar og skálar helstu gistimöguleikarnir.

Heimagisting

Um allt land má finna gistihús, mörg hver einkarekin. Gistihús eru oftast minni og persónulegri en hótel og yfirleitt ódýrari.

Glamping lúxustjöld

Glamping er þar sem töfrandi náttúra mætir nútíma lúxus.

Svefnpokagisting

Mörg gistiheimili, einfaldari hótel, farfuglaheimili og aðilar sem reka bændagistingu, bjóða upp á svefnpokapláss, en það er ódýrara en uppábúið rúm.