Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vinnustofur: Stefnan sett á Áfangastaðinn Suðurland

Hafðu áhrif á hvert ferðaþjónustan stefnir á Suðurlandi. Við bjóðum íbúum, sveitarfélögum, fyrirtækjum, leiðsögumönnum og stofnunum á opna vefvinnustofu í apríl.
Fjölskylda í Reykjadal - Páll Jökull
Fjölskylda í Reykjadal - Páll Jökull

Opnar vinnustofur fyrir íbúa, sveitarfélög, fyrirtæki, leiðsögumenn og stofnanir

Taktu þátt í vefvinnustofu um hvert sunnlensk ferðaþjónusta stefnir á komandi árum. Það skiptir máli að fá fram hugmyndir og skoðanir frá ólíkum hópum og því bjóðum við íbúum, sveitarfélögum, fyrirtækjum, leiðsögumönnum og stofnunum að taka samtalið. Vinnustofurnar eru liður í uppfærslu Áfangastaðaáætlunar Suðurlands. Kynntu þér málið á south.is/afangastadaaaetlun

Vinnustofurnar verða þrjár:

Gullna hrings svæðið - kl. 9:00-11:00 að morgni mánudags 13.apríl
- Ölfus, Hveragerði, Árborg, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur og Rangárþing ytra.

Katla jarðvangur og Vestmannaeyjar - kl. 9:00-11:00 að morgni þriðjudags 14.apríl
- Vestmannaeyjar, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur

Ríki Vatnajökuls – kl. 9:00-11:001 að morgni miðvikudags 15.apríl
- Sveitarfélagið Hornafjörður

Þátttakendum er frjálst að mæta á þá vinnustofu sem þeim hentar, óháð búsetu eða starfssvæði. Við hvetjum öll sem eru áhugasöm um þróun síns nærsamfélags til að taka þátt.

Skrá mig á vinnustofu

Hvað er áfangastaðaáætlun?

Áfangastaðaáætlun er heildstæð áætlanagerð með ferðaþjónustuna sem útgangspunkt. Í henni má finna staðreyndir um áfangastaðinn Suðurland, niðurstöður greininga, framtíðarsýn ferðaþjónustunnar á Suðurlandi ásamt markmiðum og áherslum næstu ára.

Áætlunin styður við ferðaþjónustu á Suðurlandi, þó án lagalegrar skyldu. Hún er afrakstur víðtæks samráðs og endurspeglar sameiginlega sýn íbúa, sveitarfélaga og annarra hagaðila á þróun greinarinnar.

Við gerð áætlunarinnar var farið eftir viðurkenndum greiningaraðferðum sem veita innsýn í stöðu ferðaþjónustu á Suðurlandi, tækifæri og áskoranir. Niðurstöður þeirra nýtast til stefnumótunar og aðgerða.

Skoða nánar