Tökum gestum okkar fagnandi
Undanfarið hefur talsverð umræða verið um hvernig alls kyns aðstæður og aðgerðir úti í heimi og hér innanlands geta haft áhrif á ferðaþjónustuna okkar hér á Íslandi. Það hafa auðvitað allir ákveðnar áhyggjur þegar óvissa ríkir í starfsumhverfinu sem þú vinnur í og sérstaklega þegar þú hefur litla sem enga stjórn á þeim aðstæðum. Hvort sem það er vegna óútreiknanlegra þjóðhöfðingja eða boða um auknar álögur innanlands. Þar sem gestirnir okkar hafa líklega flestir bókað sumarferðirnar með meira en þriggja mánaða fyrirvara þá fer áhrifa til dæmis af tollabreytingum líklega ekki að gæta fyrr en með haustinu.
Mikilvægi samkeppnishæfni og stöðugleika
Þessar aðstæður undanfarið minna okkur enn og aftur á að við þurfum að passa upp á að halda áfangastaðnum Íslandi samkeppnishæfum við okkar samkeppnislönd þegar kemur að ferðaþjónustunni. Þar þurfum við öll að standa saman til að atvinnugreinin sem hefur hjálpað okkur upp úr hverri efnahagslægðinni á fætur annarri standi áfram sterk og skili áfram tekjum inn í þjóðfélagið. Í þessu óvissuástandi sem ríkir með okkar lykilmarkað og í raun um allan heim þá má greinin ekki við auknum álögum frá stjórnvöldum eða óreiðu í starfsumhverfinu hér innanlands. Einnig er gríðarlega mikilvægt að stunda öflugt markaðsstarf á okkar lykilmörkuðum. Við þurfum statt og stöðugt að minna á okkur sem ákjósanlegan og spennandi áfangastað.
Framboð eykst
Við höfum svolítið verið að heyra að víða hafi byrjun ársins verið eitthvað undir áætlunum en sumarið líti vel út, líklega verði það svipað og í fyrra. Nú í dag kemur fram í grein frá Hagstofu Íslands að gistinóttum á hótelum á Suðurlandi hafi fækkað um 6,6% í mars 2025 miðað við mars 2024 en það verður að taka tillit til þess að páskarnir voru í mars í fyrra en apríl núna svo sú breyta spilar líka inn. Í sömu grein kemur fram að nýting herbergja hafi dregist saman um 5% og þá verður einnig að horfa í það að framboð hótelherbergja jókst um tæp 3% á sama tímabili. Einnig kom fram í annarri grein frá Hagstofunni að 10% aukning hafi verið í veltu lykilgreina ferðaþjónustu í janúar-febrúar 2025 miðað við sama tímabil 2024.
Bjartsýni og uppbygging á Suðurlandi
Það er mín upplifun að fólk sem starfar í ferðaþjónustu hefur almennt sýnt það að undanförnu að í því býr gríðarlegur kraftur, bjartsýni og seigla!
Hér á svæðinu finnst mér í það minnsta ríkja kraftur og bjartsýni á framtíðina í ferðaþjónustu. Það birtist manni ekki síst í því að hér er verið að byggja mikið upp og margt á teikniborðinu. Til að nefna nokkur dæmi þá eru hafnar framkvæmdir á nýjum hótelum á Hvolsvelli og niður við strönd milli Eyrarbakka og Þorlákshafnar. Líka verið að nýta jarðhitann og hafnar framkvæmdir við tvö baðlón, við Reykjadal og í Laugarási og í það minnsta tvö önnur í startholunum.
Kannski er það bara sólin síðustu daga og vorið sem lyftir manni upp og lætur mann horfa bjart fram á veginn :)
Gildi gestrisni og viðmóts
Framundan er mikilvægur tími í ferðaþjónustu og almennt fyrir okkur sem þjóðfélag. Það er mikilvægt að við metum komu gestanna okkar og tökum þeim fagnandi, koma þeirra og neysla skiptir okkur öll máli. Við þekkjum það öll sem ferðumst að þegar við erum í framandi aðstæðum þá gerum við stundum eitthvað sem heimamanninum finnst ekki svo gáfulegt. Hver hefur til dæmis ekki sólbrunnið erlendis á meðan heimamaðurinn situr í skugganum, keypt einhverja vitleysu í búð af því maður skildi ekki það sem stóð á umbúðunum eða snar bremsað af því við áttum víst að taka þessa beygju...
Öll erum við bara fólk og það sama gildir um okkar gesti á slóðum sem eru þeim framandi en okkur kunnuglegar, sýnum þeim gestrisni og tillitssemi eins og við kjósum á okkar ferðalögum.
Ragnhildur Sveinbjarnardóttir
Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands