RATSJÁIN - endurmenntun fyrir Markaðsstofur landshlutanna
Markaðsstofur landshlutanna hafa jafnan verið á hliðarlínunni á vinnustofum Ratsjárinnar sem hafa verið keyrðar reglulega, og var það því ánægjulegt þegar boðið var sérstaklega upp á slíka vinnustofu sem lið í endurmenntun starfsmanna markaðsstofanna. Vinnustofurnar voru fjórar talsins og hófust þær í nóvember síðast liðnum og lauk þeim nú í janúarlok með staðarvinnustofu í Elliðarárstofu. Grunnstef og hugmyndafræði Ratsjánnar er að efla samkeppnishæfni og auka verðmætasköpun í íslenskri ferðaþjónustu og að þessu sinni var ákveðið að kafa dýpra í eftirfarandi þætti:
- Skilningur á ferðamanna og samkeppnishæfni
- Nýsköpun, hönnun og upplifun
- Tækni og sjálfbærni sem drifkraftar
- Fólkið, samskipti og framkvæmd
Voru loturnar allar mjög gagnlegar og margt sem við getum tekið með okkur úr þeim. Var ákveðið í framhaldinu að bjóða aðildarfyrirtækjum okkar upp á stutta vinnustofu tengda gervigreind í ferðaþjónustu. Er það áætlað nú á vordögum og verður auglýst nánar þegar nær dregur.
Að lokum þakkar Markaðsstofa Suðurlands bæði Íslenska Ferðaklasanum og RATA sem eru framkvæmdaaðilar Ratsjárinnar kærlega fyrir gott skipulag og fræðslu. Einnig þökkum við fulltrúum hinna markaðsstofanna kærlega fyrir samfylgdina í gegnum vinnuna. Það er ómetanlegt að hafa slíkt stórt og öflugt tengslanet í dagsins önn!