Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Matarauður Suðurlands

Matarauður Suðurlands er nýtt matartengt verkefni hjá Markaðsstofu Suðurlands unnið í samvinnu við Matarauð Íslands.

Matarauður Suðurlands er nýtt matartengt verkefni hjá Markaðsstofu Suðurlands unnið í samvinnu við Matarauð Íslands.

Hugmyndin er að greina landshlutann út frá ákveðnum mataráttavitum með ákveðinn radíus í kringum þá og draga þannig fram þau hráefni sem framleitt er á hverju svæði eða er nýtt í matvælaframleiðslu ásamt helstu matarhefðum innan viðkomandi radíusar. Allt frá hráefni, heimilismatar, skyndibita upp í gæðarétti á veitingastöðum með því að leiðarljósi að lyfta mataráfangastaðnum Suðurlandi á næsta þrep með sjálfbærni í huga.

Suðurland er auðugt að fjölbreyttu hráefni, hvort sem er af sjó eða landi og mun verkefnið ekki aðeins styrkja stoðir undir ferðaþjónustuna heldur einnig landbúnaðinn og sjávarútveginn. Með því að draga enn betur fram þær matarhefðir sem eru og hafa verið á Suðurlandi ásamt því að kortleggja þá matvælaframleiðslu sem á sér stað á Suðurlandi er komin heildræn mynd yfir þann fjölbreytileika matarauðs sem þessi stóri landshluti hefur upp á að bjóða.  Út frá því er hægt að vinna meira og markvissara í vöruþróun og nýsköpun í matvælaframleiðslu sem og ímyndaruppbyggingu svæðisins.

Markmiðið er að endingu að búa til góðan efnis og myndabanka sem aðstoðar matreiðslufólk við að draga fram og kynna allt það sem matarauður Suðurlands hefur upp á að bjóða, allt frá framleiðslu til framreiðslu.  

Nú er verið að kortleggja matarhringi með því að greina matarhefðir, hráefni og matvælaframleiðslu á hverju svæði og stefnt er á að halda vinnustofur með matreiðslumönnum í maí og fara í hugmyndavinnu við nýsköpun og vöruþróun í matvælaframleiðslu og nýtingu hráefnis.

Fyrir áhugasama og þá sem vilja senda sögur um mat og svæðisbundnar matarhefðir má hafa samband við Helgu Lucie tengilið verkefnis á helga@south.is