Mikill áhugi á söguslóðum á Suðurlandi
Markmið vinnustofunnar var að kortleggja áhugaverðar sögur, staði og menningararf sem geta styrkt ferðaþjónustu og aukið sýnileika Suðurlands sem áfangastaðar. Í vinnustofunni komu fram fjölbreyttar hugmyndir um hvernig megi miðla sögu svæðisins á aðgengilegan og áhugaverðan hátt fyrir bæði innlenda og erlenda gesti.
Mikil áhersla var lögð á samstarf, nýsköpun og hvernig byggja megi á sérstöðu svæðisins til að skapa eftirminnilega upplifun. Umræður voru opnar og uppbyggilegar og ljóst að mikill áhugi er á áframhaldandi þróun söguslóða á Suðurlandi.
Vinnustofan á Hellu var sú fyrsta í röð vinnustofa sem haldnar verða víðs vegar um Suðurland á næstu vikum. Niðurstöður þeirra munu nýtast við áframhaldandi uppbyggingu verkefnisins og stuðla að aukinni samvinnu um miðlun sögu og menningararfs svæðisins.
Til stendur að vinnustofur verði haldnar á eftirtöldum stöðum á næstu misserum:
- Eyrarbakki 18. nóvember kl 16-18 á Rauða Húsinu.
- Kirkjubæjarklaustur 24. nóvember kl 11-13 á Hótel Klaustri.
- Vík -(tímasetning auglýst síðar)
- Laugarvatn (tímasetning auglýst síðar)
- Vestmannaeyjar (tímasetning auglýst síðar)
- Höfn (tímasetning auglýst síðar)
- Öræfi (tímasetning auglýst síðar)
